Þar sem svo oft hefur verið rætt um 308 á þessu spjalli var Svenna farið að langa mikið til að prófa þetta eðalkaliber. Þar sem mest er nú verið að veiða pappa suður í Höfnum er auðvelt að skilgreina þörf fyrir pappariffil. Að lokum var orðið ómögulegt annað en að láta það eftir sér. Þar sem Veiðimeistarinn hefur nú látið í veðri vaka að 308 sé ákaflega heppilegt til slíks brúks þó afleitt sé til veiða þá lá beinast við að slá tvær flugur í einu höggi og amerískur pappagatari af Remington gerð í hlaupvídd 308 varð fyrir valinu. Ákvað að deila mynd af vígslu á því verkfæri.
Niðurstaða fyrsta dags er að þetta er ákaflega skemmtilegt kaliber og verkfæri í skotæfingar.
Ég held að það sé því alveg við hæfi að óska honum til hamingju með að vera kominn í hóp 308 eiganda.
Search found 1 match
Til baka í “Nýr félagi í hóp 308 eiganda”
- 02 Apr 2015 23:25
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Nýr félagi í hóp 308 eiganda
- Svör: 15
- Skoðanir: 3413