Heill og sæll Jenni.
Ég get nú víst ekki þrætt fyrir það að hafa ofurlítið gluggað í tölur yfir .308
og get þá játað í leiðinni að hafa velt fyrir mér að fá mér riffil í því cal. og reyndar á ég trúlega eftir að fá mér einn slíkan, svona þegar ég er orðinn gamall og hægfara svo ég og riffill verðum í stíl
En þessa tölu hafði ég ekki séð en langar núna mikið að sjá þessa kúlu sem um ræðir, 57gn í .30 cal. hlýtur að vera eins og Rosanne Barr í laginu
Ég renndi nú yfir töfluna sem þú sendir mér og sé nú ekki betur en þessi fyrsta lína sé bara undantekningin sem sannar regluna
amk. held ég að það sé klárt að .308 er ekki "þekkt" fyrir að vera hratt og flatt eins og það hylki sem félagi Aflabrestur er með á myndinni.
MBK
Gæi