Search found 3 matches
Til baka í “Gormenn, önnur gild orð?”
- 14 Mar 2015 22:46
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Gormenn, önnur gild orð?
- Svör: 5
- Skoðanir: 1607
Re: Gormenn, önnur gild orð?
Takk allir fyrir ykkar innlegg,
- 12 Mar 2015 09:42
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Gormenn, önnur gild orð?
- Svör: 5
- Skoðanir: 1607
Re: Gormenn, önnur gild orð?
Slumsróni, ekki heyrt það áður. "Ég verð einmitt handhafi einhverra þessarra titla á komandi hausti.
- 10 Mar 2015 09:24
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Gormenn, önnur gild orð?
- Svör: 5
- Skoðanir: 1607
Gormenn, önnur gild orð?
Eftir að hafa lesið bókina eftir hann Guðna og haft bæði gagn og gaman af, lærði ég nýtt orð yfir gormann. "Vambakall". Sjálfsagt eru þessi orð af sama meiði en mig langar til að spyrja kunnuga hvort að "vambakall" sé álíka algilt orð og "gormaður"? Hafði ekki heyrt þetta orð áður en hef gaman af að læra gömul íslensk orð, sérstaklega ef þau eiga sér stoð.
Af lestri bókarinnar er það að frétta að ég rauk í gegnum hana og hafði ekkert sérstaklega gaman af. Enda ekki von. Þekking mín á staðháttum fyrir austan er ekki meiri en rúmlega þekking ferðamanns. Þótt ég þekki Hraun- og Eíríksdal og veit eins og hvert mannsbarn hvar Snæfell og Hvítserkur eru er, get ég ekki talist staðkunnugur. Ég las því bókina aftur með kort mér við hlið. Þá opnaðist nýr heimur og bókin sem var bara ein af þessum bókum sem maður les varð alltí einu mikið meira lifandi og ég drakk í mig hvert orð. Til lukku með bókina Guðni og þið sem ekki hafið lesið hana verðið ekki sviknir af því að fjárfesta í henni.
p.s. og já þið sem ekki eruð vel staðkunnugir, prófiði að lesa hana með korti ykkur við hlið. Ég þekki betur til á Rangárvöllum og suðurlandi. Ég veit til dæmis að Njála er allt önnur og skemmtilegri ef maður getur staðsett sig í sögunni, blessunarlega þarf ég ekki kort til þess en viðurkenni fúslega vanþekkingu mína á austurlandi. Hún fer samt hægt skánandi.
Með kveðju
Björn