Sælir félagar.
Ég var í smá hleðsluþróun fyrir 6,5-06AI um daginn og fékk eftirfarandi niðurstöður úr hraðamælingum á þeim hleðslum sem komu best út.
Hornady A-max 100gn 3596 - 3623 fps
Sierra Pro Hunter 120gn 3358 - 3375fps
Mig langaði að forvitnast hvort einhverjir 6,5-284 eigendur ættu einhverjar hraðamælingar á sambærilegum kúlum til samanburðar ??
MBK
Gæi
Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Reglur spjallborðs
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
- petrolhead
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:346
- Skráður:08 Ágú 2012 08:31
- Fullt nafn:Garðar Tryggvason
- Staðsetning:Akureyri
Re: Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Hér eru tölur um Nosler kúlur, bæði 100 og 120 gr, velur kúluþyngd í flipunum:
https://load-data.nosler.com/load-data/65-284-norma/
https://load-data.nosler.com/load-data/65-284-norma/
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
- petrolhead
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:346
- Skráður:08 Ágú 2012 08:31
- Fullt nafn:Garðar Tryggvason
- Staðsetning:Akureyri
Re: Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Takk fyrir linkinn Sveinn
Ég hafði aldrei rambað inn á þessa síðu áður.
En ég sé það að ég er að ná 100gn kúlu á aðeins meiri hraða en er gefið upp þarna fyrir 6,5-284 miðað við þessar mælingar sem ég gerði um daginn
Sá það líka á þessari síðu að það virðist ekki vera allur munu á 6,5-06 A-square og 6,5-06AI en svo er spurning hversu heitar hleðslur eru í þessum upplýsingum frá Nosler svo það væri gaman að heyra ef einhver sem les þetta spjall á hraðamælingar á einhverju af þessum 3 umræddu caliberum

- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Ég mældi einu sinni 10 skot úr 6,5-284 hjá mér.
100 gr. A-Max kúlur með 60 gr. af Norma MRP á bakvið.
Minnsti hraði var 3541 fet mesti hraði 3597 og meðaltal 3570 fet á sek.
100 gr. A-Max kúlur með 60 gr. af Norma MRP á bakvið.
Minnsti hraði var 3541 fet mesti hraði 3597 og meðaltal 3570 fet á sek.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- petrolhead
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:346
- Skráður:08 Ágú 2012 08:31
- Fullt nafn:Garðar Tryggvason
- Staðsetning:Akureyri
Re: Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Sæll vertu meistari Sigurður.
Gaman að sjá þessar tölur, var þetta þá það sem maður mundi kalla vel volga veiðihleðslu ?
Það má nú segja að þetta sé á pari, sama kúla hjá okkur og ég var að nota 62grain af N-160 og kominn þéttur þrýstingur, gæti ekkert bætt mikið í hylkið í viðbót.
MBK
Gæi
Gaman að sjá þessar tölur, var þetta þá það sem maður mundi kalla vel volga veiðihleðslu ?
Það má nú segja að þetta sé á pari, sama kúla hjá okkur og ég var að nota 62grain af N-160 og kominn þéttur þrýstingur, gæti ekkert bætt mikið í hylkið í viðbót.
MBK
Gæi
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hefur einhver hraðamælt 6,5-284
Ég nota eingöngu þessa hleðslu í minn riffil, vegna þess að hún virkar fanta vel og eingin ástæða til að hræra neitt í þessu !
Enda sýnir hún eingin þrýstingsmerki !!
Enda sýnir hún eingin þrýstingsmerki !!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is