Ég get ekki stillt mig um að vekja athygli á þessari heimildamynd um hreindýr og hreindýraveiðar í íslenskri náttúru og hvet alla sem kíkja hingað inn að fá sér eintak.
Konana keypti þennan disk á Barramarkaðnum um daginn og gaf mér hann í morgungjöf (minni ykkur á að hafa konurnar ánægðar, þá fáið þið kannski morgungjöf )
Ég er búinn að horfa á myndina og líkar hún vel, finnst hún fræðandi, skemmtileg og vel upp sett, ég mæli með að allir unnendur veiði, hvort sem er hreindyraveiði eða annarrar veiði, og náttúruunnendur almennt, eignist þessa mynd.
Hún er fyllilega hverrar krónu virði, sem ekki eru margar að mér finnst.
Augu hreindýrsins
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Augu hreindýrsins
Já sæll! Maður verður að verða sér útum þetta - sé ég strax í hendi mér.
Pálmi Gestsson
Re: Augu hreindýrsins
Siggi, þarf maður að hafa konuna ánægða almennt til að fá svona mynd.....eða bara kvöldið áður?
Halldór Ingvason
Akureyri
Akureyri
Re: Augu hreindýrsins
Pálmi Gestsson
Re: Augu hreindýrsins
Ég held að Siggi eigi helv..gott diskasafn orðið. Enda heldur hann fólki í skringum sig t.t. ánægðu "almennt".
Pálmi Gestsson
Re: Augu hreindýrsins
Tek undir það, fín mynd en tvö atriði stungu í augu við fyrstu sýn, enginn var kynntur með nafni. Ég þekkti nú suma en ekki alla og er ég nú úr nágrenninu. Annað sem ég sá og hefði ekki átt að sjá í svona mynd (finnst mér) er að dýrið fór alveg niður í fjöru án útihátíðarbandsins....sem ég held að sé ekki alveg samkvæmt reglunum.
Ég hef svosem ekkert út á þetta að setja en finnst bara að rétt skuli vera rétt, sérstaklega í kvikmynd eins og þessari.
Ég hef svosem ekkert út á þetta að setja en finnst bara að rétt skuli vera rétt, sérstaklega í kvikmynd eins og þessari.
Ingvar Ísfeld Kristinsson