Hreindýra-veiðileyfin.
Hæ.
Nú er ég fyrir lifandis löngu búinn að borga tarfinn og standast skotpróf.
Hvenær ætli þeir sendi út leyfin?
Er þetta ekki eithvað seinna á ferðinni en vant er?
Kveðja Óli.
Nú er ég fyrir lifandis löngu búinn að borga tarfinn og standast skotpróf.
Hvenær ætli þeir sendi út leyfin?
Er þetta ekki eithvað seinna á ferðinni en vant er?
Kveðja Óli.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Þau hafa hingað til ekki verið send út fyrr en mánaðarmótin juni júli, reikna með að það sé eins í ár
Árnmar J Guðmundsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Jæja, takk fyrir upplýsingarnar. Mig minnti að þetta hefði verið að koma eithvað fyrr.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Ég ætla ekki að sverja fyrir þetta en minnir að það hafi verið svona, tarfaleyfin bara að detta í hús þegar fyrstu menn hafa verið að pakka í bílana til að fara á veiðar.
Er þetta ekki bara svona hjá ust, sama með veiðikortið , borgar í jan og færð það í lok mars
Er þetta ekki bara svona hjá ust, sama með veiðikortið , borgar í jan og færð það í lok mars
Árnmar J Guðmundsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Held að leyfin hafi verið send svona seint hingað til af því að menn þurftu ekki að borga fyrr en 1. júlí.
Mögulega senda þeir þau fyrr núna þar sem menn þurftu að borga fyrr og hægt var að endurúthluta fyrr því sem var skilað.
En svo verður þetta kannski bara óbreytt, þ.e. póstlagt eftir mánaðamótin júní/júlí.
Svo fá menn auðvitað ekki leyfið sent fyrr en þeir hafa greitt veiðikortið, en sumir hafa klikkað á því og komið leyfislausir á hreindýraveiðar.

- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Svo færðu að sjálfsögðu ekki úthlutað leyfinu fyrr en þú hefur staðist skotpróf og menn hafa út júní til þess... þannig geri ég ráð fyrir að leyfin verði ekki send fyrr en eftir næstu mánaðarmót!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Já auðvitað, ég gleymdi því, enda kláraði ég það frá í apríl.
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:3
- Skráður:26 Mar 2014 18:10
- Fullt nafn:Kristófer Helgi Sigurðsson
- Staðsetning:Borgarnes
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
hvar kemur fram að maður hafi út júní til að standast skotprófið ? finn þetta hvergi...
Kristófer Helgi Sigurðsson
- oskararn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:30
- Skráður:18 Dec 2012 11:35
- Fullt nafn:Óskar Arnórsson
- Staðsetning:Akranes
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Stendur þetta ekki hérna í grein 2:
http://www.stjornartidindi.is/DocumentA ... 245B26EF81
http://www.stjornartidindi.is/DocumentA ... 245B26EF81
Óskar Arnórsson, Akranesi
oskararn@gmail.com
oskararn@gmail.com
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Mér sýnist þetta vera alveg kristal-tært. Gildir í 12 mánuði frá og með 1. júlí. Fínt fyrir þá sem tóku prófið í september á síðasta ári, það ætti að gilda fram að þeim degi sem þeir tóku prófið.
Ekki oft sem maður les lagaklausur sem hægt er að skilja.
Ekki oft sem maður les lagaklausur sem hægt er að skilja.
Sindri Karl Sigurðsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
„Á vottorði um verklegt skotpróf skal tilgreina auðkenni þess riffils sem notaður var við framkvæmd
þess. Veiðimanni er ekki heimilt að nota aðra riffla við veiðarnar. “
Nú bilar riffillinn sem skotprófið var tekið á. Jafnvel í reisunni og komið á fjöll. Það hefur komið fyrir mig. Þá verður veiðimaður að leggja niður skottið, hypja sig til byggða og taka próf að nýju.
Þarf ekki eitthvað að endurskoða þetta ákvæði?

Þorvaldur frá Hróarsdal
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Daginn.
Strangt til tekið ætti leiðsögumaðuinn þá að fella dýrið. Það er í praksís ekki farið eftir þessu ákvæði og ef hið ófyrirsjáanlega gerist þá er því bjargað á staðnum, með þeim ráðum sem duga.

Í praxís. Það breytir samt ekki því að þetta ákvæði er óframkvæmanlegt í praxís og gerir þá sem fyrir bilun verða að lögbrjótum. Sem ekki er gott.
Ég sé reyndar ekki hvers vegna leiðsögumaðurinn ætti að fella dýrið. Hann á aðeins að taka við ef dýrið er slasað. Það er ekki skylda leiðsögumanns að fella dýr ef veiðimaður hittir ekki eða hleypir ekki af vegna þess að pinninn í rifflinum hefur kiknað.
Ég sé reyndar ekki hvers vegna leiðsögumaðurinn ætti að fella dýrið. Hann á aðeins að taka við ef dýrið er slasað. Það er ekki skylda leiðsögumanns að fella dýr ef veiðimaður hittir ekki eða hleypir ekki af vegna þess að pinninn í rifflinum hefur kiknað.
Þorvaldur frá Hróarsdal
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Ég átta mig ekki alveg á þessum aðstæðum sem þú ert að setja þarna upp, Þorvaldur. Það eru ekki margir sem eru svo grand á því að fara með tvo riffla á veiðar, bara svona ef riffilinn skyldi bila.
Menn eru að tuða hér yfir léttu hlaupi vs Varmint hlaup sem munar nokkrum grömmum á í burði, eða stórum sjónauka með 56 mm linsu vs 40 - 44 mm linsu á nettum sjónauka sem eru kannski 200 grömm. Ég held að þessir menn séu ekki að fara að bera með sér aðra byssu, bara svona ef hin skyldi bila?
Ég held að þú sért að setja upp dæmi sem er svo sjaldgæft að það heyrir til algjörra undantekninga. Menn komnir á veiðislóð og uppgötva að riffilinn er bilaður, spurning um að prófa riffilinn kannski að morgni veiðidags áður en haldið er til fjalla? setja eitt í tóma kókómjólkurfernu á c.a. 100.
Ég held ég verði að stökkva á bátinn með Sindra hérna og segja menn reddesu bara ef þessar aðstæður koma upp.
Það er nú varla hægt að vera svona ferkantaður.

Ok. Þá skal ég segja þér smásögu. Einu sinni fékk ég hreindýraveiðileyfi. Og lagði af stað í leiðangurinn úr höfuðborginni. Ég gisti hjá vini mínum og frænda í Eyjafirðinum, sem líka var leiðsögumaðurinn minn. Kvöldið áður en við lögðum í hann austur fórum við á skotsvæðið á Glerárdal til að taka nokkur skot og gerðum það. Þegar heim kom tókum við fáein í viðbót úti á túni, fórum svo með rifflana inn í skemmu og þrifum þá og pússuðum svo allt væri nú tilbúið. Morguninn eftir ókum við á tveimur bifreiðum, enda ætlaði félagi minn að vera eftir og leiðsegja fleiri mönnum og skjóta eitt dýr sjálfur, austur í Fljótsdal og vorum komnir á veiðislóð um hádegi. Þar hittum við nokkra Akureyringa sem við höfðum átt von á og höfðu þeir þegar fundið hjörð og komumst við í röð til veiðanna. Eftir nokkurt labb vorum við komnir í færi og völdum dýr. Ég miðaði á bóginn og lét vaða. Klikk. Klikk. Annað skot. Klikk.
Nú hefði, skv. núgildandi reglum, ég átt að fara niður, afla mér riffils að láni eða kaupa annan, fara á skotsvæði, taka prófið og koma svo aftur. En núgildandi reglur giltu ekki þá. Frændi rétti mér riffilinn sinn og dýrið lá af 106 m færi.
Þegar ég var kominn heim tók ég lásinn sundur og sjá; pinninn hafði kiknað og náði ekki nógu langt út til að sprengja hvellhettuna. En ég sá líka að á honum voru ummerki eftir hamarshögg. Fyrri eigandi hafði orðið fyrir því sama og bara rétt pinnann og gleymt að geta þessa þegar hann seldi mér riffilinn ári fyrr. Síðan kaus græjan að fara í verkfall, þegar hreinninn var kominn í sigti, eftir að ég var búinn að skjóta 83 skotum úr rifflinum. Ekki bráðfeigur sá hreinn því vitaskuld varð annar fyrir valinu þegar búið var að bölva ögn og stilla sér upp aftur.
Sem sagt, svona aðstæður geta komið upp og vitaskuld gera menn nákvæmlega það sama og við frændi gerðum þá. En það er lögbrot.

- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Þorvaldur ég er alveg viss um að ekkert í núgildandi reglum hefði bannað þér að fara með riffilinn í viðgerð/fá nýjan pinna og mæta aftur án þess að taka skotprófið aftur.valdur skrifaði:Nú hefði, skv. núgildandi reglum, ég átt að fara niður, afla mér riffils að láni eða kaupa annan, fara á skotsvæði, taka prófið og koma svo aftur.
þar að segja ef tarfurinn hefði ekki séð sóma sinn í að leggjast niður og andast eftir að riffilvandræðin urðu öllum ljós.
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Já sennilega er það alveg rétt hjá þér. Gallinn er þó sá að varahlutir í mossberg 800 liggja ekki á hverri þúfu og þegar ég fór með boltann til virts byssusmiðs á höfuðborgarsvæðinu leit hann á gripinn og spurði: „Er þetta mossberg? Jááá, neiíii, ég geri ekki við svoleiðis. Panta varahlut. Neiiii það er alveg ómögulegt.“ Toppþjónusta enda maðurinn frægur.
Svo ég fann pinna á netinu og pantaði tvo. Kannski hafa þetta verið tveir síðustu pinnarnir í veröldinni því síðan hef ég ekki séð þá auglýsta. Þeir komu svo í pósti í októberlok. Sennilega hefðum við, ég og dýrið, þá verið orðin nokkuð þreyttir á að bíða þarna, en kannski hefði annarhvor okkar drepist úr leiðindum og hinn þá getað lagt hann sér til munns.
Svo ég fann pinna á netinu og pantaði tvo. Kannski hafa þetta verið tveir síðustu pinnarnir í veröldinni því síðan hef ég ekki séð þá auglýsta. Þeir komu svo í pósti í októberlok. Sennilega hefðum við, ég og dýrið, þá verið orðin nokkuð þreyttir á að bíða þarna, en kannski hefði annarhvor okkar drepist úr leiðindum og hinn þá getað lagt hann sér til munns.
Þorvaldur frá Hróarsdal
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Þetta er nú að verða eins og hjá honum Otto nokkrum Katz hjá þér Þorvaldur!
Þegar hann tapaði ónefndum þjóni í hendurnar á Lúkasi hhöfuðsmanni í spilum, þó hafði þjóninn fengið honum hundrað krónur til að borga sig út úr prísundinni, sem að sjálfsögðu töpuðust líka.
Já það er enginn sterkari örlögum sínum, ekki einu sinni þú Þorvaldur... ef nýju lögin hefðu verið gengin í gildi og þú hefðir verið með vara byssu til taks, þá er nokkuð öruggt að pinninn hefði gefið sig í henni líka.
Þegar hann tapaði ónefndum þjóni í hendurnar á Lúkasi hhöfuðsmanni í spilum, þó hafði þjóninn fengið honum hundrað krónur til að borga sig út úr prísundinni, sem að sjálfsögðu töpuðust líka.
Já það er enginn sterkari örlögum sínum, ekki einu sinni þú Þorvaldur... ef nýju lögin hefðu verið gengin í gildi og þú hefðir verið með vara byssu til taks, þá er nokkuð öruggt að pinninn hefði gefið sig í henni líka.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Hreindýra-veiðileyfin.
Og fyrir lögunum skal bera fulla virðingu. Agi verður að vera sagði Svejk.
Þorvaldur frá Hróarsdal