Síða 1 af 1

RÝR RJÚPNA VERTÍÐ

Posted: 18 Nov 2016 22:17
af karlguðna
Ætlaði að gera aðra tilraun til að ná í rjúpu ,, svona eins og eina máltíð eða svo, en þá bilar fjallajeppinn. :oops: og ekki ein rjúpa þetta árið. Svo það má segja að þeim hafi tekist að alfriða rjúpuna fyrir mér þetta árið .
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... _radherra/ OG SVO ÞETTA ,,,,,, var svosem vitað ...
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... pnaskyttu/

Re: RÝR RJÚPNA VERTÍÐ

Posted: 21 Nov 2016 16:15
af karlguðna
Það er geðslegt eða hitt þó að "neyða" menn út í svona veður til veiða !
https://www.dv.is/frettir/2016/11/21/ot ... stfjordum/

Re: RÝR RJÚPNA VERTÍÐ

Posted: 22 Nov 2016 20:07
af Sigurður
Rýr rjúpna vertíð, á 3 helgum hef ég veitt 4 rjúpur. Veðrið hefur verið rok og rigning slydda og eiginlega allt sem gerir svona sportveiði ömurlega. Ég held að með þessari veiðistjórnun sé endanlega búið að gera út af við það sport sem rjúpnaveiði er. Áður en höftin komu á , þá valdi maður góða daga til að sporta sig á fjöllum og naut þess að vera í útivist og gera kannski góða veiði í leiðinni.