Síða 1 af 1

Kæra hreindýraveiðar

Posted: 02 Oct 2017 16:02
af Haglari
Ekki er öll vitleysa eins.... hinir náttúrulausu hyggjast kæra hreindaýraveiðar og rjúpnaveiðar á íslandi.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/ ... upnaveida/

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 02 Oct 2017 17:35
af Veiðimeistarinn
Þetta er svo vitlaust og sett fram af svo mikilli vanþekkingu að þetta tekur engu tali !

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 02 Oct 2017 20:10
af Sveinbjörn
Að skjóta kýrnar frá ungum kálfum vekur upp tilfinningar og það sem verra er að Íslendingarnir stjórnast af fésbók og tilfinningarklámi.

Mín skoðun er sú að þeir fáu sem hafa viðtæka þekkingu á atferli og veiðum snúi sér að því að hugsa út leiðir til þess að koma til móts við þá sem sjá þetta í öðru ljósi.

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 02 Oct 2017 21:30
af sindrisig
Eða gera það sem virkar best á athyglissjúklinga, svara þessu einfaldlega ekki og láta eins og þeir séu ekki til. Ekki reyna að búa til umræðu á þessu plani, þetta umræðuplan er eins og að standa á gati.

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 03 Oct 2017 10:14
af Haglari
Það er nú málið.... þetta er vandmeðfarið. Fullt af fólki sem er kanski skynsamt, en veit ekki betur, getur fallið í þá gryfju að taka á mark á svona vitleysu. Þessvegna þarf að svara svona bulli en passa sig á sama tíma að láta ekki draga sig niður á sama plan. Skotvís sendi frá sér yfirlýsingu í gær sem kemur vel út. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/ ... g_fordoma/

Best væri ef málið/kæran yrði tekin fyrir svo að það sé hægt að loka á svona bull eitt skipti fyrir öll!

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 05 Oct 2017 16:52
af Feldur
Og fyrst það er svona slæmt að skjóta beljurnar frá kálfunum....leyfa kálfaveiðarnar bara aftur.

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 26 Oct 2017 21:35
af Veiðimeistarinn

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 30 Oct 2017 12:40
af Haglari
Það náttúrulega blasti við að þessi kæra yrði felld niður.... en það er reynt áfram.

Sennilega á þetta vel við:

Re: Kæra hreindýraveiðar

Posted: 30 Oct 2017 18:47
af Aflabrestur
Á vel við