Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Mér datt til hugar að starta þræði sem við getum montað okkur af nýjum græjum, byssum og tilheyrandi.
Ég var að fjárfesta í nýjum sjónauka á riffilinn hjá mér, niðurstaðan var Zeiss Conquest 6,5-20x50 silver með hunting turrets, mil dot krossi og áfestum hallamæli.
Fékk hann örlítið notaðan á góðu verði og nú verður 30 ára gamla góða Taskoinum sem ég keypti af Árna Loga forðum, skipt út og hann geymdur til vara í skápnum.

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Maður er alltaf að versla sér dót
Hallamálið er algjört þarfaþing á lengri færin fyrir svona pésa eins og mig sem á það til að halla sketinu að mér
Hjá mér er það nýjasta Sonic hreinsivél,Úrsláttarhamar þar sem ég komst að að ég á ekki að hlaða ársbirgðir af skotum eftir 6mánuði + fer að bera á ónákvmni þar sem sumar kúlurnar eru að bíta sig í brassið svo ég slæ þar örlítið út og set þær á sinn stað.

Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- Sveinbjörn
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:250
- Skráður:17 Jun 2012 23:49
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Já Browning veiðijakka sem mín góða kona gaf mér í afmælisgjöf og frétti hún það eftir á.
Og hverju ætlar þú svo að henda vildi hún vita því eitthvað er til fyrir sem tekur full mykið pláss.
Svo er ég farinn að trimma á morgnanna. það er bara gaman með kaffi og hlusta á útvarpið á meðan. Var mjög duglegur í morgun og tók tuttu hylki yfir morgunfréttum.
Svo á ég hlaup í pöntun hjá Hjálmari í Hlað sem kemur í næsta mánuði.

Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þá er Zeiss Conquest 6,5-20x50 sjónaukinn kominn á 6,5-284 riffilinn hjá mér, og riffillinn kominn frá Gylfa vini mínum Sig og er eins og nýhreinsaður hundur.
Gylfi prufaði hann eftir þrifabaðið með massa, skóp og alles......og varð alveg standandi bit hvað hann setti vel með þessar léttu kúlur 95 gr. V-Max á 3400 fetum þegar hann prufaði hann á eftir. Fimm skot sem öll komust fyrir ,,undir krónupeningi" sagði höfðinginn, þegar hann mátti mæla
Nú er bara að stilla hann inn, ég sagði við séra nafna sem bauð mér að koma með sér á laugardagsmorguninn að skjóta í mark að ég ætti bara 4 skot til að stilla hann, en mér dygðu 3 sagði ég rogginn, svo nú verð ég bara að standa við stóru orðin
Gylfi prufaði hann eftir þrifabaðið með massa, skóp og alles......og varð alveg standandi bit hvað hann setti vel með þessar léttu kúlur 95 gr. V-Max á 3400 fetum þegar hann prufaði hann á eftir. Fimm skot sem öll komust fyrir ,,undir krónupeningi" sagði höfðinginn, þegar hann mátti mæla
Nú er bara að stilla hann inn, ég sagði við séra nafna sem bauð mér að koma með sér á laugardagsmorguninn að skjóta í mark að ég ætti bara 4 skot til að stilla hann, en mér dygðu 3 sagði ég rogginn, svo nú verð ég bara að standa við stóru orðin
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Svo komst ég í skápana hjá séra nafna, honum Gunson okkar hérna!
Það er greinilegt að honum verður seint varnað aðgangs þarna í ,,uppheimum" eins og hann er vel vopnum búinn.
En miðað við skotfærin í skápnum gæti hann Lykla Pétur orðið dálítið snúinn og kannski ekki mjög hræddur, ef hann er ekki að væflast þarna í hliðinu berfættur, ja.....svona ef hann hefur eitthvað vit á byssum og skotfærum

- Viðhengi
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Siggi minn. Þú misskildir aðeins. Ég sagði öskutunnulok. Ekki krónupeningur
En hvað um það. Riffillinn þinn skaut vel eftir mössunina.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég vissi nú að þið Þingeyingar eru góðir með ykkur, en ég vissi ekki að þið hefðuð sérslegna krónupeninga norður þar, ja......nema krónupeningarnir ykkar séu líka svona loftfylltir......?......
Takk æðislega Gylfi minn fyrir liðlegheitin og hjálpina, þið Þingeyingar eruð höfðingjar heim að sækja og bóngóðir með afbrigðum, það verður aldrei af ykkur tekið
Takk æðislega Gylfi minn fyrir liðlegheitin og hjálpina, þið Þingeyingar eruð höfðingjar heim að sækja og bóngóðir með afbrigðum, það verður aldrei af ykkur tekið
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég náði loksins í púður!
Annars ætlaði ég að kaupa 5-skota magasín í tikkuna mína hjá þér Sveinbjörn og þú tókst niður pöntun - fyrir ári síðan.. grunar að miðinn hafi farið beint í ruslið því ekkert hef ég magasínið séð.

-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Eitt stk. oterup frá hlaðverjum 22lr. hlakka til að prófa ,,, vantaði reyndar "gatið" í aftur sigtið en Bóbó Norðfjörð reddaði því með stæl,, svo nú er bara að prófa,,
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
204 Ruger hlaup á Blaser R8, er að fikta við hleðslur núna sem lofa góðu
Kv. Pálmi S. Skúlason
When discussing caliber, Dead is dead and it’s not worth arguing about.

- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 9
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sinclair Neck Turner... þennan græna NT-4000 held ég að hann heiti.
Svo fékk brói í sömu sendingu Redding Competition Die-a í .284 Win riffilinn. Þeir eru ekki ókeypis!

Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
-
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:8
- Skráður:26 Sep 2013 14:43
- Fullt nafn:Sigurður Alexander Àsmundsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Í vetur keyfti ég sako trg 300wm með zeiss victory 6x24x56 af Gylfa Sig. Svo er að sækja hleðslusettið í hlað à Húsavík à morgun. Fórum 2 fyrir styttu að skjóta á lengri færum 500m og 677m. Gekk betur en mig hafði nokkur tíma grunað.
Kv Alexander
Kv Alexander
Sigurður Alexander Àsmundsson
siggilexi@gmail.com
siggilexi@gmail.com
- Jón Pálmason
- Póstar í umræðu: 3
- Póstar:177
- Skráður:16 Ágú 2010 21:54
- Fullt nafn:Jón Pálmason
- Staðsetning:Sauðárkróki
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sælir/ar.
Leðurhaglapung / flösku með skammtara. Fyrir framhlaðninga.
Framleiðsluár ca 1850.

Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
Með kveðju úr Skagafirði
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Var að koma úr verslunarferð í Basspro í Orlando og keypti þar töluvert af kúlum og hylkum ásamt öðru mis mikilvægu dóti
Kv. Ingvar Kristjánsson
- petrolhead
- Póstar í umræðu: 12
- Póstar:346
- Skráður:08 Ágú 2012 08:31
- Fullt nafn:Garðar Tryggvason
- Staðsetning:Akureyri
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Konnari; djö... öfunda ég þig , það er gaman að kíkka í þá búllu
Annars var undirritaður að versla tálgaðan spítukubb frá honum Randy Boyd í Ameríku og bíð þolinmóður eftir að USPS komi honum á leiðarenda
MBK
Gæi
Annars var undirritaður að versla tálgaðan spítukubb frá honum Randy Boyd í Ameríku og bíð þolinmóður eftir að USPS komi honum á leiðarenda
MBK
Gæi
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Var að fá þetta í hús frá US&A
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Nýtt 6 mm Krieger hv hlaup á Arctic Eagle 6 PPC á leiðinni.
Eitthvað af öðru stöffi með , þar á meðal Fl diar fyrir 6 ppc og 30 BR
Eitthvað af öðru stöffi með , þar á meðal Fl diar fyrir 6 ppc og 30 BR
- Viðhengi
-
- images7PUSCGE1.jpg (4.79KiB)Skoðað 8770 sinnum
- images7PUSCGE1.jpg (4.79KiB)Skoðað 8770 sinnum
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Nýjasti aukahluturinn á 204 var að detta í hús
- Viðhengi
-
- 001 (Small).jpg (85.07KiB)Skoðað 8700 sinnum
- 001 (Small).jpg (85.07KiB)Skoðað 8700 sinnum
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Í reisn
- Viðhengi
-
- 002 (Small).jpg (69.19KiB)Skoðað 8691 sinnum
- 002 (Small).jpg (69.19KiB)Skoðað 8691 sinnum
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Steini hvar fékst þú þetta ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.