Síða 1 af 1
Timbur í skepti
Posted: 16 Mar 2015 17:54
af petrolhead
Sælir félagar.
Eru ekki einhverjir hér á spjallinu sem hafa verið í að smíða skepti ?
Þannig er nú fyrir mér komið að mig er farið að langa verulega að prófa að smíða riffilskepti frá grunni og vildi því að forvitnast hvort einhvers staðar hér á landi sé hægt að fá góðan efnivið í slíkt eða hvort maður mundi þurfa að leita út fyrir landsteinana með hráefni í þetta ??
MBK
Garðar
Re: Timbur í skepti
Posted: 16 Mar 2015 18:24
af frostisig
Sæll
Var í sömu hugleiðingum fyrir um ári og kynnti mér þetta svolítið. Talaði við Arnfinn og hann sagði að hnota væri best, hún fæst í efnissölunni og kostar svolítið en ekkert hrikalega ef ég man rétt. Hann sagði mér líka að ef maður hefði ekki annað en handverkfæri þá væri mjög erfitt að nota límtré því það væri erfitt að vinna það. Þetta eru þau ráð sem ég fékk en því miður get ég ekki miðlað reynslu af smíðuðum þar sem frestunaráráttan tók völdin og svo pantaði ég á endanum frá boyds.
Annars finnst mér nú líklegt að margar gerðir harðviðar séu brúklegar.
Vonandi hjálpar þetta eitthvað.
Re: Timbur í skepti
Posted: 16 Mar 2015 19:01
af gkristjansson
Hafðu samband við Jóa Vill, hann kann þetta.
Re: Timbur í skepti
Posted: 16 Mar 2015 22:06
af BrynjarM
Ísnes flytur inn hnotu frá Calico skv. heimasíðunni þeirra.
En eins og Guðfinnur benti á þá er Jói Vill algjör snillingur í þessu.
Re: Timbur í skepti
Posted: 17 Mar 2015 05:20
af petrolhead
Daginn félagar.
Ég er einmitt búinn að guggna á þessu einu sinni eins og þú Frosti og versla hjá Boyds en þetta er samt að kitla mig verulega ennþá, verð bara að prófa þetta
Það er auðvitað rétt hjá ykkur Jói er náttúrulega maðurinn sem veit allt í þessum efnum, best að eiga við hann orð með þetta.... og athuga í leiðinni hvort hann er ekki að fara að halda námskeið í skeptissmíði
Grienilega hægt að fá flottan við þarna í Ísnes en það er sennilega betra að byrja á einhverju sem er minni fórn í ef maður klúðrar þessu algerlega, sem er ekki það ólíklegasta
svo Efnissalan er sennilega betri kostur fyrir svona byrjendur eins og mig.
MBK
Gæi