Timbur í skepti

Allt um græjur og búnað sem tengjast byssum, beint eða óbeint.
User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 2
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri
Timbur í skepti

Ólesinn póstur af petrolhead » 16 Mar 2015 17:54

Sælir félagar.

Eru ekki einhverjir hér á spjallinu sem hafa verið í að smíða skepti ?

Þannig er nú fyrir mér komið að mig er farið að langa verulega að prófa að smíða riffilskepti frá grunni og vildi því að forvitnast hvort einhvers staðar hér á landi sé hægt að fá góðan efnivið í slíkt eða hvort maður mundi þurfa að leita út fyrir landsteinana með hráefni í þetta ??

MBK
Garðar
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

frostisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:50
Skráður:06 Jan 2014 17:34
Fullt nafn:Frosti Sigurðarson

Re: Timbur í skepti

Ólesinn póstur af frostisig » 16 Mar 2015 18:24

Sæll
Var í sömu hugleiðingum fyrir um ári og kynnti mér þetta svolítið. Talaði við Arnfinn og hann sagði að hnota væri best, hún fæst í efnissölunni og kostar svolítið en ekkert hrikalega ef ég man rétt. Hann sagði mér líka að ef maður hefði ekki annað en handverkfæri þá væri mjög erfitt að nota límtré því það væri erfitt að vinna það. Þetta eru þau ráð sem ég fékk en því miður get ég ekki miðlað reynslu af smíðuðum þar sem frestunaráráttan tók völdin og svo pantaði ég á endanum frá boyds.

Annars finnst mér nú líklegt að margar gerðir harðviðar séu brúklegar.

Vonandi hjálpar þetta eitthvað.
Kveðja
Frosti Sigurðarson
Egilsstöðum

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Re: Timbur í skepti

Ólesinn póstur af gkristjansson » 16 Mar 2015 19:01

Hafðu samband við Jóa Vill, hann kann þetta.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

BrynjarM
Póstar í umræðu: 1
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16

Re: Timbur í skepti

Ólesinn póstur af BrynjarM » 16 Mar 2015 22:06

Ísnes flytur inn hnotu frá Calico skv. heimasíðunni þeirra.
En eins og Guðfinnur benti á þá er Jói Vill algjör snillingur í þessu.
Brynjar Magnússon

User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 2
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri

Re: Timbur í skepti

Ólesinn póstur af petrolhead » 17 Mar 2015 05:20

Daginn félagar.

Ég er einmitt búinn að guggna á þessu einu sinni eins og þú Frosti og versla hjá Boyds en þetta er samt að kitla mig verulega ennþá, verð bara að prófa þetta ;)

Það er auðvitað rétt hjá ykkur Jói er náttúrulega maðurinn sem veit allt í þessum efnum, best að eiga við hann orð með þetta.... og athuga í leiðinni hvort hann er ekki að fara að halda námskeið í skeptissmíði :)

Grienilega hægt að fá flottan við þarna í Ísnes en það er sennilega betra að byrja á einhverju sem er minni fórn í ef maður klúðrar þessu algerlega, sem er ekki það ólíklegasta :? svo Efnissalan er sennilega betri kostur fyrir svona byrjendur eins og mig.

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

Svara