500 metrarnir nálgast
Sælir ég bara varð að monta mig ég skaut þennan með 204 ruger á 489 metrum örítið niður á við og vindur ca 6 metrar 45° stefna en þetta var einn skarfur yfir og eitt mildot til hliðar og greyið steinlá
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: 500 metrarnir nálgast
489 metrar með svona Pííínu lítilli kúlu ! Vá.
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson
Þórir Kristinsson
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Re: 500 metrarnir nálgast
Glæsilegt skot!
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: 500 metrarnir nálgast
Jamm 39gr Blitzking valið stóð á milli hennar og 45gr Hornady SP en ég þekti fallið betur á 39 og vindurinn var ekki 90°þá tók ég sénsinn og gleymdi að taka fram að ég er með hann núllaðann á 160 og ég lét fyrsta milldott tilla á hausnum á honum þar sem hann var alveg spertur og á verði þá passaði það að kúlan fór inn við vængfestinguna og bringan heill þar sem þetta litla apparat fer með alla sprenginguna samt áfram,Voru kopar þynnur í beinunu á bringuni en ekkert í kjötinu.
Síðast breytt af Gisminn þann 14 Feb 2014 14:33, breytt í 1 skipti samtals.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: 500 metrarnir nálgast
Sæll og góðan daginn !
Það er alveg óhætt að vera montinn af þessu, verulega langt færi í svona veiðiskap . Flott skot.
Ég ætla að reyna að teygja mig eitthvað með þennann hér að neðan, þó ekki sé nema .223 Rem.
Ætla að sjá hvað ég kemst með 70-80 graina kúlum

Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki Magnússon
Ágúst Bjarki Magnússon
Re: 500 metrarnir nálgast
Þetta væri aðdáunarvert ef þú sæktir fuglinn sjálfur en værir ekki alltaf að senda vinkonu mína út í sjó á eftir þessum illfyglum
Kveðja Keli
Kveðja Keli
Re: 500 metrarnir nálgast
í þetta skiptið þurfti snotra ekki út í sjó heldur bara að hlaupa sandinn en þessi elska elskar að sækja og ég elska að veita henni þá ánægju
En Ágúst fallegur rifill og smá forvitni með twistið með 70-80gr kúlu er hún ekki dálítið þung ?
En Ágúst fallegur rifill og smá forvitni með twistið með 70-80gr kúlu er hún ekki dálítið þung ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: 500 metrarnir nálgast
Sæll Þorsteinn,
Já takk fyrir það, riffillinn er mjög vel heppnaður. Tvistið í honum er 1-8" og á hann skv öllum uppgefnum töflum að fara vel með 80 graina kúlurnar. 69 - 80 graina kúlurnar eru ansi langar og fallegar í þessu kaliberi. Þetta verður ansi gaman að prófa . Það er verulega gaman og ljúft að skjóta úr honum, eðal varmint tæki.

O jæja 504 metrar í dag logn og blíða en ég hitti ekki blessaðann skarfinn ættlaði að komast að hvað gerðist og fór á æfingarsvæðið mitt en þá var kúlan úti um víðan völl vegna sviptivinda þar og reyndi ég bara við 300 þar og munaði nærri 13cm upp og niður á kúlunum og en á 100 nánast gat í gat en orðið vart við óstöðuleika á 200 og svo þetta á 300 verður að bíða betri tíma hvort fallhraðinn sé orðinn meiri en ég reikna með á 500
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson