Sælir félagar, Svandís Svavarsdóttir var með grein í Morgunblaðinu í dag um "Ábyrgar veiðar og vernd"
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... ltra_dyra/
Þetta er ekki öll greinin þarna, mögulega getur einhver skannað hana inn alla. En Svandís fjallar nokkuð um starfshópinn sem hún skipaði. Það að hún hafi skipað Fuglavernd í hópinn hefur mér alltaf fundist eins og að fá ofsatrúar Múslima til þess að ræða breytingu á Kóraninum
Orðrétt skrifar hún "Flest bendir til þess að við núverandi ástand sé nýliðun í svartfuglastofnum ekki nægjanleg til að vega upp á móti afföllum vegna veiða"
Þær fréttir sem að hafa borist af norðurlandi benda nú reyndar eindregið til þess að fuglinn sé með vængi og noti þá þetta vitum við veiðimenn en eitthvað virðist þetta vefjast fyrir háskólagengnum líffræðingum og "sérfræðingum að sunnan" Þetta vissi fólk hér áður og fyrrum og sagði: Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.
En það tekur alveg steinin úr þegar hún skrifar " en almannavaldinu ber síðan að hafa heildarhagsmuni í huga og láta náttúruna njóta vafans" þar sem að sami ráðherra hefur gefið leyfi fyrir ræktun á erfðabreyttum lífverum, og það líka nálægt búi með lífræna ræktun. Auk þess að gefa leyfi fyrir eldi á norskum eldislaxi í kvíum í sjó.
Ég er fiskeldisfræðingur og veit alveg jafn vel og þessir snillingar að það sleppur alltaf einhver prósenta úr kvíunum, spurningin er bara hversu mikið?
Því miður virðist náttúran nefnilega ekki fá að njóta vafans hjá þessu batteríi nema á hátíðis og tryllidögum, nema náttúran sé svona ofboðslega mismunandi eftir vindum og sólfari
Kveðja Keli
Svandís með svar í Mogganum
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Svandís með svar í Mogganum
Hérna kemur greinin í heild.
- Viðhengi
-
[The extension docx has been deactivated and can no longer be displayed.]
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Svandís með svar í Mogganum
Takk Sigurður ég hef lítið að bæta við orð Kela. Ég hef grafið mikið ofan í svartfuglarannsóknina og sama hve oft ég les hana þá kemst ég alltaf að þeirri niðurstöðu að hún var óvönduð og gerð gjörsamlega með það að markmiði að sýna fram á nauðsin á friðun.
Skólabókadæmi um það sem við Sugurður Töluðum um í öðrum þræði.
Skólabókadæmi um það sem við Sugurður Töluðum um í öðrum þræði.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Svandís með svar í Mogganum
Þakka þér fyrir þetta Sigurður.
kveðja keli
kveðja keli