Verð á hreindýrakjöti

Allt sem viðkemur hreindýrum
iceboy
Póstar í umræðu: 2
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:
Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af iceboy » 18 Jul 2015 09:39

Sælir félagar

Það var verið að spurja mig um verð á hreindýrakjöti
Og þá aðallega hvaða verð væri á dýrinum ef það væri tekið hálft dýr.

Á hvaða verði hafið þið verið að selja dýrin í hálfum eða heilum skrokk
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 18 Jul 2015 11:23

3.500 kr. gk. í hálfu og heilu, meira hausskotið!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

Jenni Jóns
Póstar í umræðu: 2
Póstar:285
Skráður:11 May 2013 21:37
Fullt nafn:Jens Jónsson

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Jenni Jóns » 18 Jul 2015 11:57

Veiðimeistarinn skrifaði:3.500 kr. gk. í hálfu og heilu
Siggi er hægt að kaupa beljuskrokk hjá þér á þessu verði?
40 kg skrokk á 140.000 kr?
Jens Jónsson
Akureyri

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Gisminn » 18 Jul 2015 12:45

Ég held að þetta sé nálægt verði hjá Sigga miðað við skrokk á beini.Úrbeinað og pakkað erum við að tala um önnur verð en svona beint úr skinninu held ég að þetta sé nálægt verði.
Annars þekki ég ekki þennan markað.Ég fékk frábæra meðferð á mínu dýri fyrst fláð hjá Sigga svo í úrbeiningu og vacumpökkun hjá kjötiðnaðarmanni og allt borðað heima
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

iceboy
Póstar í umræðu: 2
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af iceboy » 18 Jul 2015 13:11

Já þá er þetta bara það verð sem ég hélt eða þóttist vita, ég vildi bara athuga áður en ég svaraði og segði einhverja svaka vitleysu :-)
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 18 Jul 2015 15:39

Jenni, það gæti alveg komið til greina, það eru alltaf einhverjir veiðimenn að selja skrokka sérstaklega ef þeir eru tveir þrír saman og hafa ekki not fyrir allt kjötið.
Þarftu að fá það fyrir einhvern sérstakan tíma?
Það verður kannski eitthvað falt eftir nóvemberveiðina líka.
Minntu mig bara á þetta regluleg ég er svo gleyminn :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 2
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af gkristjansson » 18 Jul 2015 16:26

Ég verð með Sigga á veiðum með tvo útlendinga eftir 8 daga, báðir með tarf og ég reikna fastlega með að kjötið af öðrum tarfinum verði falt ef einhver hefur áhuga.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

Jenni Jóns
Póstar í umræðu: 2
Póstar:285
Skráður:11 May 2013 21:37
Fullt nafn:Jens Jónsson

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Jenni Jóns » 18 Jul 2015 21:11

Veiðimeistarinn skrifaði:Jenni, það gæti alveg komið til greina
Þakka þér fyrir Siggi, ég myndi kannski þyggja þetta ef það væri ekki svona skratti gaman á þessum veiðum :) því þetta er kosta boð allavega miða við ef maður býr á Akureyri þá er 3.500 kr á kíló fyrir 40 kg belju undir kostnaðarverði ef maður þarf að kaupa sér gistingu við veiðarnar og getur ekki samnýtt leiðsögumann og bíl á veiðarnar.

Þannig að ef allur kostnaður er reiknaður
Leyfi 80.000
leiðsögumaður ?
Eldsneyti 25.000kr
gistin 1 til 2 nætur ?
fæði í ferðina 7000+

þá er það meira en 140.000

En ég bý gríðarlega vel og mæti sem einn af 3 um 2 dýr.
Jens Jónsson
Akureyri

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af sindrisig » 19 Jul 2015 01:12

Það getur bara ein tegund af veiðimönnum verið réttu meginn við núllið þegar kemur að debet og kredit og hreindýraveiði.
Sindri Karl Sigurðsson

BrynjarM
Póstar í umræðu: 1
Póstar:70
Skráður:12 Jun 2012 13:16

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af BrynjarM » 19 Jul 2015 16:32

Fyrir margt löngu gátu laxveiðimenn borgað upp veiðileyfin sín með því að selja laxinn í verslanir. Það er löngu liðið bæði vegna hærri veiðileyfa og vegna þess að laxinn er ekki eins verðmætur lengur. Ég held að við sportveiðimenn getum varla litið á það sem raunhæft að selja aflann til að borga upp allan kostnað og það á við um hreindýraveiðina líka. Þó að kostnaður við veiðitúr hjá mér sé 250-300 þús get ég ekki búist við því að fá það fyrir skrokkinn ef hægt er að kaupa innflutt kjöt út í búð fyrir minni upphæð og þá með smásöluálagningu. (Þó verð á innfluttu sé reyndar hátt.) Ættum kannski frekar á líta jákvætt á það að fá eitthvað upp í kostnaðinn ef við viljum ekki borða bráðina sjálfir.
Brynjar Magnússon

Haglari
Póstar í umræðu: 1
Póstar:125
Skráður:03 Oct 2013 20:27
Fullt nafn:Óskar Andri Víðisson
Hafa samband:

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Haglari » 21 Jul 2015 23:20

Væri áhugavert að vita hvort einhver veit c.a. kílóverð á heilum úrbeinuðum skrokk.

Að því sögðu þá er ég með til sölu heilan fláðan 90kg skrokk tilbúin til úrbeiningar á 3500 kr/kg.

til-solu/hreindyrs-skrokkur-t2575.html

User avatar
Dr.Gæsavængur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:57
Skráður:05 Jun 2012 15:08

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af Dr.Gæsavængur » 22 Jul 2015 12:03

Sæll Árnmar, Óskar og fleiri.

Þið voruð að velta fyrir ykkur verði á hreindýrakjöti. Í fyrra seldi ég helminginn af mínum tarf. Þetta var um 80kg tarfur. Ég lét vinna skrokkinn og vacumpakka, sat eftir með rúmlega 40 kg af kjöti. Ég seldi uþb. helminginn eða rétt rúm 20 kg á 6000kr/kg. eða á 120 þúsund.

Hvort það er mikið, lítið eða sanngjarnt veit ég ekki. En verð á vöru er það sem að kaupandi er tilbúinn að borga, hvorki meira né minna. Ég var allavega sáttur, átti nóg af kjöti og fékk upp í hluta kostnaðar.

Í ár er ég aftur með Tarf. Fer á veiðar um komandi helgi. Ég mun þurfa að selja skrokkinn í heilu/hálfu í ár þar sem ég mun flytja erlendis í ágúst og ég á ennþá til kjöt frá í fyrra.

Hann auglýsist hér með til sölu :D
Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 2
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Re: Verð á hreindýrakjöti

Ólesinn póstur af gkristjansson » 02 Ágú 2015 19:13

Við tókum tvo tarfa í ferðinni okkar, báðir voru sendir í úrbeiningu. Þannig að ég hef unnið kjöt (vakum pakkað) til sölu, sendið einkaskilaboð ef áhugi er fyrir hendi að kaupa.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

Svara