Síða 1 af 1

Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 05 Sep 2015 18:36
af Gisminn
Sælir ég virðist vera að brenna inni með dýrið mitt og var að spá hvort þetta sè ekki tarfur sem fær að lifa ì boði mínu

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 05 Sep 2015 20:34
af iceboy
Prófaðu bara að skila honum inn, þa versta sem gerist er að það tekur hann enginn og hann lifir á þinn kostnað, ef þú talar ekki við þá ´hjá UST þá færðu allavega pottþétt ekkert, það eru enþá 10 dagar eftir svo það er enþá möguleiki að þú fáir 75 %

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 05 Sep 2015 21:26
af Gisminn
Ok takk

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 08 Sep 2015 20:57
af grimurl
Sæll Þorsteinn

Hvernig fer þetta hjá þér, fékkstu endurgreitt eða skellirðu þér austur og tekur tarfinn?

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 08 Sep 2015 21:24
af jon_m
Það er erfitt að skila inn eftir þennan tíma, en alltaf möguleiki að einhverjir heimamenn slái til.

Afhverju kemur þú bara ekki austur og veiðir þinn tarf ?
Það er reyndar ekki sérstök spáin næstu daga.

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 08 Sep 2015 22:54
af Gisminn
Verið að vinna í því

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 11 Sep 2015 10:17
af Gisminn
Vonandi hafragrautur að vaðbrekku á sunnudagsmorgun

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 11 Sep 2015 12:34
af BrynjarM
Það er nú meira haft við á sunnudögum á Vaðbrekku þekki ég Sigga rétt. Örugglega hræringur með rjóma! Kannski bláber með fyrst það er sunnudagur.

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 16 Sep 2015 15:39
af grimurl
Hvernig fór þetta Þorsteinn, felldirðu tarfinn?

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 17 Sep 2015 14:38
af Gisminn
Sæll Grímur nei tarfurinn fékk líf eftir 2 ferðir austur og 5 daga í leit þá varð ég að lúta í gras.
Þetta er bara veiðin

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 17 Sep 2015 20:07
af grimurl
æ,æ,æ það var leitt.
Hvernig var annars ferðasagan þessar tvær ferðir?

Re: Er ekki orðið of seint að skila tarfi á sv 7

Posted: 19 Sep 2015 20:38
af Gisminn
Jú èg skrifa góða sögu þegar ég kemst í tölvu