Í gærmorgun þá var einn rebbi að væplast innan um kindurnar og lömbin.
Ég skaust af stað með gamla góða Sako Vixen sem ég á í cal 222 og komst í færi við rebba.
Rebbi kom nú eitthvað ílla út úr þessum samskiptum okkar en hann var skotinn fríhendis á 100 metra færi.
Ég ætlaði að leggjast á túnið og skjóta en túnið er svo kýft að þá sá ég hann ekki svo að ég neiddist til að skjóta hann fríhendis, þó svo að það sé nú ekki mín uppáhalds skotstaða.
En það er annar rebbi að álpast innan um féð en ég rétt missti af honum í morgun, en það kemur annar dagur eftir þennan dag
![Wink ;)](./images/smilies/icon_e_wink.gif)