Já, ekki á að reyna að hægja á fjölgun refa hér í sveitum:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... refaveida/
Þó á nú ekki að hætta greiðslum fyrir minkinn sem er ágætt.
En í morgun kom skólabílstjórinn með þær fregnir að hann hafi keyrt fram á ref, sem að var að tætast í sauðfé rétt upp við veginn. Ég veit ekki hvort að búið sé að ná þessum grip eða ekki Refur sem að lætur svona er dýrbítur.
En svona er það nú bara, það á að friða refinn algerlega og best er að fækka þessum helvítis bændum sem að alltaf eru að agnúast út í hann, SAUÐ-meinlausan og alsaklausan
http://www.bbl.is/index.aspx?GroupId=38 ... TabsId=191
Svandís klikkar ekki.
Þar sem að hún hefur sagt áður að við ættum að girða jarðir okkar af, gleymdi hún ekki að girðingar hindra för refa og drepa eða laska rjúpur. Verðum við þá ekki kærðir fyrir girðingarnar, fyrir utan það að valda hættu á því að túristakvikindin rífi fötin sín þegar þeir hjassast yfir girðingarnar sem að eru allstaðar fyrir í náttúrunni eins og ég hef fengið að heyra.
Kveðja Keli
Ekkert fé til refaveiða
Re: Ekkert fé til refaveiða
Já Keli það er nú gott að þessir "ágætu" þingmenn ætla að láta þennan vetur endurspegla sínar áherslur í málum sem skipta þá máli. Nýta tímann til að koma sínum málefnum á framfæri fyrir kostningabaráttuna
Það skildi þó aldrei vera að þessir bændur og veiðimenn jafnvel líka, að þessir hópar séu læsir og jafnvel með kostningarétt????
Það skildi þó aldrei vera að þessir bændur og veiðimenn jafnvel líka, að þessir hópar séu læsir og jafnvel með kostningarétt????
Árnmar J Guðmundsson
Re: Ekkert fé til refaveiða
Þetta er skelfilegt.
Ráðgjöf NÍ og Umst er glæsileg.
Segum að næsta haust verði komnir 15 þús refir!
Segjum að yfir vetrarmánuðina éti hver 100 fugla það er fugl annan hvern dag!
1.500 000 fuglar
Segjum að helmingurinn sé fóður frá sumrinu áður og reki og rusl!
750 000 rjúpur!
En þær eru bara ekki til!
Hvað viljum við gera?
Spyrjum þingmennina okkar!
það eru prófkjör framundan!

E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Re: Ekkert fé til refaveiða
Vona að menn hafi vit á að kjósa ekki þessi K...yfir okkur aftur í næstu kostningum. Meira liðið, Steingrímur, Svandís, Ögmundur..
Kveðja
Kristján R. Arnarson
Húsavík
Kristján R. Arnarson
Húsavík
- Sveinbjörn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:250
- Skráður:17 Jun 2012 23:49
Re: Ekkert fé til refaveiða
Það vill svo undarlega til að ég hef ekki orðið var við að bændur bjóði áhugasömum veiðimönnm aðgang að veiðilendum. Af því gefnun velti ég því fyrir mér hvort að þetta sé ekki eitthvað orðum aukið
Hvar eru allar þessar skelfilegu tófur sem éta bændur og búalið út á gaddinn? Af hverju eru þær ekki skotnar? Ég hef nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því að ekki sé það skortur á veiðirfifflum sem standi fækkun fyrir þrifum.
Getur það verið að það sé skortur á aðgengi sem dragi úr áhuga manna á því að stunda refaveiðar?
Á góðviðrisdögum er ekki þverfótað á skotæfingarsvæðum vegna margmennis. Þar er saman safn af góðum skyttum með búnað sem flokkast með því allra besta sem völ er á. Það er ekki ósennilegt að hluti þessara drengja hefði áhuga á því að reyna sig og græjur á einhverju öðru en pappaspjaldi.
.

Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
Re: Ekkert fé til refaveiða
Sæll Sveinbjörn eigum við að snú dæminu aðeins!
Hefur þú boðið bónda að skjóta ref fyrir hann og hver voru svörin ?
Hefur þú boðið bónda að skjóta ref fyrir hann og hver voru svörin ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- Sveinbjörn
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:250
- Skráður:17 Jun 2012 23:49
Re: Ekkert fé til refaveiða
Já það hef ég gert og því var tekið vel. En eftir sem áður velti ég því fyrir mér af hverju þessi svo kallaða plága sé nánast friðuð.
Meðfram öllum vegum má sjá skilti sem banna skotveiðar.
Meðfram öllum vegum má sjá skilti sem banna skotveiðar.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
Re: Ekkert fé til refaveiða
Er ekki á flestum stöðum skilti með þessari áletrun. Öll skotveiði bönnuð nema með leyfi landeiganda ?
Og svo er líka hitt til eins og á mínu svæði þar sem skyttur hafa fengið veiðiréttin fyrir ýmis viðvik og þær setja út bannskiltin en ekki landeigendur.
Þetta snýst líka um stærra samhengi sem er að landeigendur vilja vita hverjir eru á svæðinu og vilja stjórna því sjálfir sem er mjög skiljanlegt.