Nú er sauðburður loksins að klárast og mikið af lömbum út um öll tún.
Í gærmorgun þá var einn rebbi að væplast innan um kindurnar og lömbin.
Ég skaust af stað með gamla góða Sako Vixen sem ég á í cal 222 og komst í færi við rebba.
Rebbi kom nú eitthvað ílla út úr þessum samskiptum okkar en hann var skotinn fríhendis á 100 metra færi.
Ég ætlaði að leggjast á túnið og skjóta en túnið er svo kýft að þá sá ég hann ekki svo að ég neiddist til að skjóta hann fríhendis, þó svo að það sé nú ekki mín uppáhalds skotstaða.
En það er annar rebbi að álpast innan um féð en ég rétt missti af honum í morgun, en það kemur annar dagur eftir þennan dag
Rebbi kallinn
Árnmar J Guðmundsson
Re: Rebbi kallinn
Já oftast er hann að leita að hildunum en bara smá ábending sem þú eflaust gerisr samviskusamlega að það er að láta grenjaskyttuna vita
Það er svo leiðinlegt að liggja á greni og bíða eftir dýrir sem þegar hefur verið fellt
Það er svo leiðinlegt að liggja á greni og bíða eftir dýrir sem þegar hefur verið fellt
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Rebbi kallinn
Hann fór ekki langt heldur rebbi sem kom í morgun, forvitið kvikindi, hann lagðist niður svo að ég sá bara eyrun á honum upp úr grasinu, en það var nóg:-) Ekki mikið eftir af hausnum eftir 55gr softpoint kúluna:-)
Árnmar J Guðmundsson
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Re: Rebbi kallinn
Glæsilegt hjá þér
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Rebbi kallinn
Takk fyrir það. Nóg er af þeim allavega. Sá eina í viðbót í morgun en náði henni ekki. Hún var styggari, gæti trúað að það sé læða
Árnmar J Guðmundsson
Re: Rebbi kallinn
Langaði að skella inn mynd af rebbunnum sem ég skaut um daginn
Árnmar J Guðmundsson