Núna eru búin að koma upp mál á fjórum bæjum hérna í Rangárvallarsýslu þar sem refur er að fara í lömb í sumar.
Vantar ekki einhversskonar miðlægan grunn yfir þessi tilfelli, hversu mörg og hvar þau verða, og einnig hvar fólk verður vart við refin til að hægt verði að fá heildarmynd af þessum málum og leggja fyrir ráðuneytið. Þetta er orðið mjög alvarlegt ástand á refastofninum en eftir að fjármagni til veiða hefur verið skorið niður hefur eitthvað mikið gerst. Eina sem stjórnvöld skilja eru gögn og væri ekki gott ef hægt væri að koma upp einskonar gagnasafni yfir þetta. Endilega setjið inn þau dæmi sem þið vitið um, bæði dýrbíta, og svo hvar sést hefur til refs, og hversu títt.
Gagnaöflun vegna dýrbíta
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Gagnaöflun vegna dýrbíta
Jú ég er sammála því að það þarf góðan gagnagrunn um þetta málefni.
Það er vont til þess að hugsa að bændur sem sleppa á fjall á ákveðin svæði reikna með 25-25 lömbum í afföll það er svakaleg blóðtaka en auðvitað er þetta ekki allt tófu að kenna en á þessum stað voru fyrir 3 eða 4 árum unnin greni og 29 dýr feld og fundust 70* lambshræ við grenin.
Skal setja nokkra tengla.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2009/ ... u_lambinu/
http://www.feykir.is/archives/41108
http://www.feykir.is/archives/37239

Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Gagnaöflun vegna dýrbíta
Sæll Magnús, ég er búinn að senda ábendingu að það vanti skráningarmöguleika í atvikaskráninguna í Fjárvís til þess að stofna svona miðlægan gagnagrunn vegna dýrbíta. En Fjárvís er skýrsluhaldskerfi fyrir sauðfjárrækt fyrir þá sem ekki vita
Þar sem þetta fer í gegnum bændasamtökin, tel ég frekar að einhver viðbrögð eigi sér stað en ef þetta færi í gegnum UST eða svipaða stofnun.
Svo gæti fjárvís sent niðurstöðurnar á snillllllingana hjá nefndum stofnunum svo að þeir geti komist að niðurstöðu, eða ekki.
Kveðja Keli

Síðast fært upp af maggragg þann 13 Sep 2012 11:13.