Sælir/ar.
Fyrstu heimildir um íslenska byssusmíði er frá fyrri hluta 18. aldar. Þar var að verki Einar Bjarnason bóndi í Skaftafelli í Öræfum. Byssur hans þóttu snilldarlega vel gerðar.
Jón Björnsson á Dalvík smíðaði Drífurnar eins og kunnug er og sögu hans eru gerð ágæt skil á heimasíðu Veiðisafnsins.
Jón Þorsteinsson vélsmiður frá Ólafsfirði byrjaði að smíða haglabyssur um 1920 og var að til 1956.
Jósef Jóhannesson frá Akureyri smíðaði síðan örfáar byssur laust fyrir 1890. Í heimildum er talað um fjórar selabyssur nr.8
Um Jósef má lesa í Sögu Akureyrar, Árbók Þingeyinga-1964, Ævisögu Jóhannesar á Borg og Íslenskum Sjávarháttum.
Search found 1 match
Til baka í “Byssur smíðaðar af íslenskum byssusmiðum”
- 08 Feb 2015 18:47
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byssur smíðaðar af íslenskum byssusmiðum
- Svör: 7
- Skoðanir: 3171