Fann óvænt afgang af hreindýri (eða hreyndýri eins og sumir rita það) inní frysti. Ég skaut þessa óláns belju árið 2011 og hefur kjetið verið vaacum pakkað í frysti alla tíð síðan. Ég helt ég væri búinn að matreiða allt en fann svo þetta fína rib eye neðst í frystinum.
Spyr ég mér fróðari menn, á maður að taka sjénsinn og elda 2011 árgerðina ofan í familíuna á jólum komandi - eða er hætt við því að slíkur elli smellur verði helst til þunnur þrettándi fyrir bragðlaukana í þessari mikilvægu kvöldmáltíð?
Search found 1 match
- 18 Dec 2013 11:40
- Spjallborð: Verkun og eldamennska
- Umræða: Of gömul belja?
- Svör: 3
- Skoðanir: 4792