Já það er nú það með Skotvís og stjórn, eins og Þorsteinn bendir á þá er hægt að velja sæti... Varðandi skotprófið, þá var ég með sögu af Spánverja í kollinum. Hún var örugglega ættuð frá Sigga.Einar P skrifaði:Bara til að leiðrétta þig Sindri þá gilda skotpróf frá norðurlöndunum og jú væl er kanski óþarfa orð. Kannski skotveiðimenn ættu að ganga í Skotvis og beita síðan sameinuðu afli sínu í að breyta reglunum. Það virðast reyndar margir vera óánægðir með það félag en þá er bara mæta á fundi og hafa áhrif/skipta um stjórn.
Search found 8 matches
Til baka í “Hreindýr kvóti 2015”
- 26 Jan 2015 17:03
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
- 25 Jan 2015 23:09
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Ég held að það sé enginn að væla neitt. Það þarf einfaldlega að koma einhverju skikki á þessi mál. Þitt próf í Svíþjóð gildir ekki síðast þegar ég vissi á Íslandi. Hér þurfa merkir menn að fara í skotpróf hálftíma fyrir skot.
Eins og ég segi, það þarf að koma einhverju vitrænu kerfi á þetta. Svona vinnubrögð eru einfaldlega til latningar á öllu sem þessu viðkemur.
Í raun ætti alls ekki að vera þriggjaskiptaregla á skotprófinu. Það á einfaldlega að fara fram á að skila inn skotprófi ÁÐUR ER SÓTT ER UM LEYFI. Hvað sem tautar og raular. 30 skipti í skotpróf, hvaða andskotans máli skiptir það, ef menn ná því á endanum? Er þá ekki tilgangnum náð?

- 25 Jan 2015 20:39
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Sælir.
Rétt hjá Konnaranum og í raun verður það trúlega reyndin með 100% greiðslu fyrir hreindýraleyfið að menn taka að sjálfsögðu prófið fyrst og sækja síðan um.
Enda er önnur meðhöndlun á umsækjendum öll frekar furðuleg ef skilyrðið fyrir hreindýraleyfinu er fullnægt eftir á, eins og gert er nú. Það skapar klárlega endurkröfurétt á leyfisveitandann.

- 25 Jan 2015 19:09
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Ég er eitthvað haltur í að koma tilvitnunum hingað inn en bókstafir tala og ég læt það duga.
Þorsteinn, það er gott að við séum sammála um að hækka ekki hlutina um meira en sem nemur "eðlilegu gjaldi".
Kv.
Sindri

- 25 Jan 2015 17:44
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Kór rétt hjá Jenna.
Við erum að tala um epli Þorsteinn, en þú ert greinilega með appelsínu. Eða kýst að halda henni fram.
Til að hnykkja á því sem þú segir sjálfur Þorsteinn, þá er verið að tala um 100% greiðslu í apríl en ekki 25% greiðslu. Það er stór munur þar á þar sem að búið er að greiða FULLT GJALD fyrir leyfið. 25% var hægt að réttlæta sem pappírskostnað osfrv. þó fáránlega hátt sé.

- 25 Jan 2015 16:19
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Það má alveg draga upp hin og þessi komment um þetta mál og velta því fyrir sér hvort einhver sé þess umkominn að geta skotið hreindýr.
Því verður samt ekki breytt að þú borgar ekki fullt leyfi fyrir hreindýr og færð því síðan ekki úthlutað, "vegna óheppni" eða einfaldlega annara óviðráðanlegra hluta, án þess að fá það greitt til baka 100% með því sem því tilheyrir.
Það er ekki hægt að kaupa einhvern hlut með margra mánaða fyrirvara og skilyrðum annars aðila í þokkabót (skotprófið), án þess að geta skilað honum amk. 100%.
Þú mátt ausa lekabyttuna eins og þér hentar Þorsteinn mokaðu því bara ekki yfir í garðinn hjá mér. Það er alveg ljóst í mínum huga að ef það kemur upp að ég fell í skotprófi og fæ úthlutað hreindýri, þá mun ég sækja þessi 100% í gegnum þar til bærar leiðir. Ég reyndar ef það stórlega að UST muni setja kraft í að verja mál eins og þetta. Það er fyrirfram tapað.
Það er stór munur á staðfestingargjaldi og fullu leyfi.
Smá viðbót.
Það er síðan stjórnunarlegt atriði og hagur þeirra sem fá arð af veiðunum að það sé ekki verið að eyða fé í allskyns krúsidúllur og þvælu í kringum þetta. En þetta er önnur umræða sem þarf að taka á öðrum þræði.

- 25 Jan 2015 11:58
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Ég er sammála Jenna í þessari umræðu.
Ég get ekki skilið þetta öðruvísi en borgun leyfisins fyrirfram, með áhættu um fall í skotprófi, þýði í raun að UST þurfi að borga leyfisgjaldið til baka með vöxtum og verðbótum til þeirra sem falla á skotprófinu.
Annað gengur einfaldlega ekki upp.

- 24 Jan 2015 00:08
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýr kvóti 2015
- Svör: 55
- Skoðanir: 6540
Re: Hreindýr kvóti 2015
Ég held að það skipti engu máli hvort skyrtan er í brókinni eða ekki. Umsóknir verða alltaf á síðustu stundu, afgreiðsla þeirra einnig og skil á leyfi er að sama skapi á síðasta degi.
Menn geta ekki einu sinni gefið út loðnukvóta nema næstum því hérumbil!
Gott að búa á Íslandi.