Verði þér að góðu og kærar þakkir fyrir viðskiptin
Erum að ganga frá pöntun á þessum hlífum þannig að þær ættu að verða til hjá okkur aftur innan skamms
kv.
Guðmann
Sportvík ehf.
Search found 3 matches
- 08 Feb 2014 20:28
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: HEYRNASKJÓL
- Svör: 23
- Skoðanir: 3515
- 13 Jan 2014 12:50
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: HEYRNASKJÓL
- Svör: 23
- Skoðanir: 3515
Re: HEYRNASKJÓL
Sæll Sigurður.Veiðimeistarinn skrifaði:Guðmann, já það er satt þetta er góð græja en eruð þið ekki með þær í camo litunum, ég tók þær í camo litunum úti í Aeríkuhreppi
Get ekki hætt á að einhver snúi sér við og sjái mig vegna eitur grænna heyrnahlífanna
Okkar birgir í ameríkuhreppnum hefur ekki verið með þessar hlífar í camo en ef breyting verður þar á munum við örugglega skoða að taka þá týpu inn ásamt þeirri grænu
Svo höfum við líka verið að skoða hlífar sem heita "Impact Pro" og eru
með "noice reduction rating upp á 30 decibel, gæti verið sniðugt fyrir riffilskyttur.
kv.
Guðmann
- 12 Jan 2014 12:32
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: HEYRNASKJÓL
- Svör: 23
- Skoðanir: 3515
Re: HEYRNASKJÓL
Sælir.
Eins og komið hefur fram erum við hjá Sportvík að selja heyrnarhlífarnar frá Howard Leight.
Ég var búinn að skoða ýmsar tegundir og útfærslur af hlífum,bæði með umhverfismagnara og án áður en ákvörðun var tekin um að þessar væru þær einu réttu
Ástæðurnar voru m.a. eftirtaldar, Howard Leight Impact Sport hlífarnar eru þær einu sem ég fann í þessum verð/gæðaflokki sem ekki nudduðust við skeptið á byssunni hjá mér þegar ég er að skjóta.
Frágangur á hljóðnemum er vandaður og því minna vindgnauð sem truflar mann þegar einhver vindur er,(þetta getur oft verið vandamál í ódýrari hlífunum).
Rafhlöðuending er mjög góð, hlífarnar slökkva sjálfkrafa á sér eftir 4 klst ef ekkert er átt við þær. rafhlöðurnar eru hefðbundnar AA.
Hlífarnar eru með 1 hnapp til að kveikja - hækka - slökkva, sumar hlífar eru með hnapp sitthvoru megin sem mér finnst bölvað vesen,og aðrar með sér on/off rofa og svo hækka/lækka rofa.
Plögg fyrir mp3 ofl. er auka bónus sem ég átti ekki von á að nýta mér en í dag myndi ég ekki kaupa hlífar án þessa möguleika
Það eru til betri hlífar á markaðnum t.d. eru 3M Peltor hlífarnar líklega heldur vandaðri (En fyrirferðarmeiri og fleiri takkar,og kosta meira) Einnig eru MSA Sordin hlífarnar algjör klassi en þær kosta 2-3x meira.
kv.
Guðmann
Sportvík ehf