Ef þetta tekst hjá þér Maggi þá eiga flest skotfélögin eftir að kaupa svona stýringu hjá þérmaggragg skrifaði:Hef verið að skoða þennan búnað sem er seldur fyrir þessar græjur. Gallinn er að þær kosta ansi mikið miðað við hvað þær eru oft einfaldar og þar sem ég var að læra aðeins á arduino og átti eitt borð langaði mig að prófa mig áfram. Þannig væri hægt að koma þessu upp fyrir brot af kostnaðinum.
Það sem kemur reyndar líka inní er að stjórnbúnaðurinn fyrir kastvélarnar er kominn til ára sinna og notast við 24v AC en það fæst ekkert í þannig rafkerfi í dag. Að auki er ekki gert ráð fyrir ljósabúnaði í því rafkerfi. Það væri því snilld ef hægt væri að mixa eitthvað skemmtilegt úr þessu, bæði krefjandi og skemmtilegt fyrir mann sjálfan, er mikill tölvu grúskari, og svo einnig að koma upp flottri stýringu fyrir lítið með möguleika á endalausum viðbótum, ef allt fer eins og maður vonar
Relayborðið kostar um þúsund kallinn og þráðlausi búnaðurinn eitthvað helmingi meira. Svo væri svosem líka hægt að gera þetta mechaniskt frá grunni líka. En ætla að sjá hvort þetta sé ekki hægt svona
kv.
Guðmann