Víst er það rétt að verð á endurhleðsluvörum er orðið hátt... eða var það kannski bara alltaf of lágt hér fyrir nokkrum árum?
Ég verð að viðurkenna að verðið á ameríska púðrinu olli mér miklum vonbrigðum. Tæpar tíu þús. kr. fyrir 454 gr. af púðri er helv. mikið, miðað við VV púðrið. Ég hef samt lært það, að ef ég ætla að vera áfram í þessu sporti, þá þýðir ekki annað en að eiga nóg af birgðum. Nýjar birgðir voru ótrúlega fljótar að seljast upp, og maður sat kannski eftir með sárt ennið, og ekkert púður, eða kúlur, af þeirri gerð sem maður var sáttur við, og búinn að eyða tíma og auðvitað peningum í að finna réttu samsetninguna fyrir riffilinn.
Síðustu árin hef ég gætt þess að kaupa nægilega mikið magn af púðri, kúlum og primerum, svo ég verði ekki uppiskroppa, þegar birgðir í verslunum seljast upp. Kaupi gjarnan 1000 st. af primerum í einu, einnig og töluvert af þeim kúlum sem ég vil nota. Gæti þess líka að eiga alltaf nóg af púðri.
Ég mun samt kaupa þetta ameríska púður, þó það sé dýrt, vegna þess að mér líkar vel við það.
Kannski er svipað með endurhleðsluvörur, og klósettpappír og túrtappa... þetta selst alltaf.
Search found 1 match
Til baka í “Verðlag á púðri, hvellhettum og kúlum”
- 23 Jun 2013 20:18
- Spjallborð: Kostakjör
- Umræða: Verðlag á púðri, hvellhettum og kúlum
- Svör: 12
- Skoðanir: 5507