Search found 2 matches
Re: BenchRest
Satt er það félagi Sveinbjörn þar hefði mátt sýna meiri fyrirhyggju með tímasetningar, hvað vestrið varðar þá var þetta nú bara gamann að lokum og ég er sennilega ekki al saklaus af stólaleiknum, hægindi það sem mér var boðið upp á í seinni umferðinni leit út eins og hitamælir undir afturendanum á mér sem er nú vel breiður og miðað við traustabrestina óttaðist ég stjaksetningu all mjög um tíma og "stal" því stól af næsta sakleysinga með hraði, mér findist það nú lágmark ef menn eru að skjóta á annara manna blöð að hafa það nú minnst tíu og helst X lika en ekki ljóta sjöu . svona uppákomur geta hrært töluvert í kollinum á manni þega maður er kominn til að gera sitt besta og er í topp baráttunni en allt fór vel að leikslokum og menn skemtu sér vel sem er fyrir öllu, og þátttakan í þessum .22 mótum í sumar hefur verið frábær 15-20 manns í móti á flestum stöðum
Re: BenchRest
Þar sem ég er víst einn af þessum líflausu Br skyttum verð ég að halda uppi vörnum, mótið var einfaldlega keirt það hratt áfram að ekki var mikill tími til samkvæmishjals við gesti og gangandi!! og þar sem svona nákvæmnisskotfimi krefst jú einbeitingar og að halda fókus þá eyðir maður timanum milli riðla í að stúdera vind og huga að búnaði eða spá í spilinn með félögunum en ekki kaffi spjall, ef menn vilja taka lagið út undir vegg með bauk eða fleig er er ráð að fara í réttir eða á hestamót, og kaffið og kakan var fyrir keppendur líka.
Það er nú ekki langt síðan ég var á ónefndu skotmóti suður með sjó þar sem umgjör'in og skipulagið var svona ekki ólikt og á krá í viltavestrinu um 1870 og hittnin manna eftir því einhverjir hittu nú ekki einusinni á sín eiginn blöð, sá mest eftir að hafa skilið .32 Navy Coltinn og hattinn eftir heima hefði fittað vel, en stemmingin var vissulega ekki eins formleg en ekki einusinn neskaffi í boði.
Og jú það er rétt .30 cal skorar betur, en erfiðara að skjóta seiga margir en 6mm er nákvæmari að flestra mati. Og logn er ekki alltaf besta veðrið það getur verið svikult