Ég tek undir þetta. Ég er sjálfur með Vortex PST 6-24X50 MRAD FFP á Tikkunni minni og er vægast sagt mjög sáttur.Hjörtur S skrifaði:Sæll
Ég valdi Vortex og er ánægður með hann.
Þú setur link á MOA en ég mæli frekar með að velja í þetta MRAD sem er þægilegt fyrir okkur sem hugsa í metrakerfi.
Þú getur kynnt þér þetta betur hér : http://www.vortexoptics.com/product/vor ... le/reticle
Þú færð rosalega mikið fyrir peninginn (m.a. kross í stíl við færslu sem bíður upp á þægilegt fjarlægðarmat, sérstaklega ef þú ferð í FFP, og auðveldar alla útreikninga, auk þess sem hann hefur ljós í krossi, zero-stop, ofl.) og það hlýtur að segja eitthvað að nákvæmlega þessir sjónaukar voru lengi vel ófáanlegir vegna þess að framleiðandinn hafði ekki undan við það að anna eftirspurn. Margir okkar þurftu að bíða lengi á biðlista eftir PST sjónauka.
Ég vona að þetta hjálpi þér eitthvað við valið