Sælir.
Takk fyrir þessar upplýsingar. Ég lét ekki verða af hleðslu á þessum 120gr. A Max sem að ég á, en langar svolítið að reyna að finna einhverja nákvæma hleðslu með þeim fyrir riffilinn. Hvort ég gef mér tíma í það á næstunni er þó óráðið.
Þess má geta að ég hef ekki geta fengið hann (riffilinn - Tikka T3 Varmint) til þess að skjóta neinu undir 123gr. eins vel og hann er að fara með 136-156gr. kúlur. Rétt er þó að taka fram að ég hef ekki farið í víðtækar prófanir á misheitum hleðslum, þar sem að ég er ekki stórtækur hleðslumaður, heldur haldið mig við það að prófa svona "best general"-hleðslur í þessum léttari kúlum. Af einhverjum ástæðum hefur riffillinn ekki verið viljugur til þess að vinna með þær.
Þrátt fyrir að hafa ekki græjað 120 gr. skot fór ég, eins og til stóð, og tók nokkur skot með 140gr. Sierra GK. Setti ég þar nokkrar misgóðar group-ur, með skafrenning í andlitið, en sú kúla hefur aldrei brugðist mér... ef tekið er tillit til aðstæðna og ástands/getu skyttu.
Allavega. Við skulum endilega reyna að halda þessum þræði lifandi. Áhugavert topic. Ég hendi inn upplýsingum hér þegar/ef ég læt verða að því að gera eitthvað með þessar kúlur.
Search found 2 matches
Til baka í “120 grn Kúla í 6,5x55”
- 05 Jan 2016 00:25
- Spjallborð: Endurhleðsla
- Umræða: 120 grn Kúla í 6,5x55
- Svör: 6
- Skoðanir: 2141
- 02 Jan 2016 19:48
- Spjallborð: Endurhleðsla
- Umræða: 120 grn Kúla í 6,5x55
- Svör: 6
- Skoðanir: 2141
Re: 120 grn Kúla í 6,5x55
Þar sem að titillinn á að hluta til við þá ætla ég að leyfa mér að sleppa því að búa til nýjan þráð og fá að henda hér inn tveimur spurningum.
Sú fyrri tengist þræðinum beint, þar sem að ég velti fyrir mér hvort einhver hér hafi notað N135 til þess að hlaða á bakvið 120gr. kúlu (t.d. A-Max) í 6.5x55 (í mínu tilfelli Tikka T3 Varmint)?
Ef ekki, þá snýr sú seinni að því hvort einhver á höfuðborgarsvæðinu, eða á leiðinni þaðan yfir á Selfoss, eigi N140, N150, N160 eða N165 til þess að selja mér í fyrramálið? #einnbjartsýnn