Flott mál Gangi þér vel með þetta og endilega leyfðu okkur að heyra hvar þú endar (t.d. í "Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?"-þræðinum hér á spjallinu).eythoringi skrifaði:Ætla að taka mér ágætis tíma í að skoða bæði notað og nýtt, er ekkert að drífa mig að þessu. Takk annars fyrir góð svör
Search found 5 matches
- 02 Oct 2015 08:51
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5545
Re: Byrjanda pæling.
- 02 Oct 2015 00:07
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5545
Re: Byrjanda pæling.
Sæll enn og aftureythoringi skrifaði:eru tvíhleypurnar ekki yfirleitt dýrari en pumpur ?
Þar sem þetta er mín fyrsta byssa langar mér að fá mér eithvað í ódýrari kantinum (en samt eithvað sem hægt er að treysta á) til að prufa og sjá hvort þetta sé eithvað sem ég hef áhuga á.
Um leið og ég skil þetta viðhorf, varðandi það að kaupa eitthvað í ódýrari kantinum, þá verð ég líka að fá að bæta við mín 2 cent.
Yfirleitt fara verð og gæði saman og því muntu líklega þurfa að borga fyrir "eitthvað sem hægt er að treysta á". Einnig eru mun meiri líkur á því að þú hættir ef/þegar þú lendir í vandræðum með einhverja budget-byssu (svoleiðis sögur eru út um allt á netinu). Að sama skapi verður þetta allt miklu skemmtilegra ef byssan virkar og hentar þér vel, eins og áður hefur verið bent á að skiptir mestu máli.
Að lokum getur reynst erfiðara að losa sig við budget byssur, að hluta til út af takmarkaðri eftirspurn sem og miklu framboði.
Ég mundi þ.a.l. mæla með því að þú skoðaðir næsta skref fyrir ofan ódýrari kantinn og bíða og safna ef budget-ið leyfir það ekki. Mætti líka líta í kringum sig eftir góðum notuðum byssum.
P.s. Allar ofangreindar byssur (þær sem ég taldi upp í mínum síðasta pósti) hafa verið keyptar notaðar Hef bara lent í einni bilun og umboðsaðilinn reddaði því samstundis (þrátt fyrir að byssan væri nokkurra ára gömul og keypt notuð - þjónusta sem þú færð líklega ekki frá mörgum umboðsaðilum).
- 01 Oct 2015 17:28
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5545
Re: Byrjanda pæling.
Ég þarf náttúrulega ekkert að taka það fram að þarna er ég bara að fjalla um þær byssur sem ég hef reynslu af og læt öðrum það eftir að mæla með, eða á móti, öðrum byssum.
- 01 Oct 2015 17:13
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5545
Re: Byrjanda pæling.
Sæll aftureythoringi skrifaði:Hef pælt í því og það er alveg inni í myndinni, en er meira hrifinn af pumpu. Ertu með einhverja í huga ?
Sjálfur gerði ég þetta í þessari röð:
1. Benelli Super Nova Synthetic (pumpa)
2. Benelli Super Black Eagle 2 (hálfsjálfvirk)
3. Marocchi Zero 3 Sporting (tvíhleypa)
Í fyrsta lagi get ég vel mælt með Super Nova pumpunni. Mjög góð byssa, skemmtilegir fítusar og frábært umboð (hef persónulega reynslu af því). Eini ókosturinn við hana, að mínu mati, er sá að hún er hönnuð fyrir allt að 3,5" skot og því er "slagið" eða "pumpunin", eða hvað þú vilt kalla þetta, frekar langt. Það venst þó og hefur ekki teljandi áhrif. Sé alltaf svolítið eftir því að hafa selt hana. Hefði verið flott í "varabyssu", en að sama skapi hefur hingað til ekki reynt á að vera með backup fyrir SBE2 þar sem hún hefur aldrei klikkað (7-9-13). S.s. Benelli klikkar ekki... og ef hún klikkar þá reddar umboðsaðilinn þér á no-time.
Í öðru lagi þá hefur mér alltaf fundist tvíhleypur meira spennandi en pumpur. Ég keypti þó pumpu sem fyrstu byssu eftir ráðleggingar/sögusagnir af netinu og frá reyndari aðilum þar sem því var haldið fram að tvíhleypur væru vonlausar í skurði og annað slark. Það má vel vera að tvíhleypur séu viðkvæmari fyrir skít og drullu en aðrar byssur en þó þekki ég í dag nokkra aðila sem veiða alla sína fugla með tvíhleypu. Hvort sem það er gæs, önd eða rjúpa.
Ég keypti mér því tvíhleypu um leið og færi gafst (eftir að hafa uppfært úr pumpu í hálfsjálfvirka). Ég get í því samhengi vel mælt með Marocchi, en í dag tæki ég Zero3 Field fram yfir Sporting. Einna helst vegna þess að Field gerir ráð fyrir ól (festingar), sem Sporting gerir ekki. Þ.e.a.s. ég mundi vilja geta gengið með hana á öxl (með ól) og notað hana í önd og rjúpu. Það fannst mér aldrei fýsilegt með Sporting.
Eins finnst mér Baikal tvíhleypa áhugaverður kostur sem fyrsta byssa. Ég þekki til nokkurra sem eru með svoleiðis og þeir láta mjög vel af. Hún er, að ég tel, mjög mikið "bang for the buck" eins og þeir segja Ég mæli með því að þú skoðir hana.
Í þriðja lagi þá verð ég að taka undir með Krossdal varðandi það að mestu skiptir að þú sért að velja þér byssu byggt á því hversu vel hún hentar þér og því sem þú ætlar þér að nota hana.
- 01 Oct 2015 10:45
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5545
Re: Byrjanda pæling.
Hefur þú eitthvað skoðað það að fá þér tvíhleypu, eða er það alveg út úr myndinni?