Er það bara ég eða hefur verið hálf dauft yfir spjallinu síðustu vikur? Er menn enn að jafna sig eftir hreindýr og mesta gæsa"sísonið"? Ekki hef ég heldur lesið neinar fréttir af nóvember-veiði... En sjálfur fór ég í vikunni, ásamt góðum félögum, og við náðum í þrjár litlar beljur undir Fláajökli.
Læt nokkrar myndir flakka og skrifa svo kannski stutta lýsingu á næstu dögum. ATH. smellið á myndirnar til þess að sjá þær í heild.
Search found 8 matches
Til baka í “Á hreindýraveiðum”
- 08 Nov 2015 23:50
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
- 26 Ágú 2012 19:00
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Til hamingju með tarfinn Gylfi og skemmtilega frásögn.
Dreymir um að hafa einn daginn æft mig nógu mikið til þess að vera svona öruggur á jafn löngu færi og það við þessar aðstæður. Það kemur vonandi að því einn daginn
OG ég verð að taka undir þetta með hljóð/högg. Þetta kom mér mikið á óvart. Þó svo að 6.5x55 slái nú ekkert sérstaklega né séu lætin mikil, þá fann maður ekki fyrir neinu þrátt fyrir að vera ekki með hlífar.

- 20 Ágú 2012 11:36
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Sæll Þórður
Takk fyrir hrósið Myndatakan tókst, þó ég segi sjálfur frá, vonum framar þrátt fyrir mikinn asa og adrenalín-flæði. Gaman að eiga þetta svona skjalfest eftir á. Varðandi kúluna þá er hún, jú, frekar þung fyrir veiðar með þessu kalíberi. Hins vegar er hún svo helvíti nákvæm og góð að ég ákvað að læra frekar vel á ferilinn en að fara í léttari, og hugsanlega ónákvæmari kúlu. Nákvæmnin helgast væntanlega af hröðum snúning í hlaupi (1 snúningur á 8 tommum) og skv. forritum og reiknivélum var ferillinn ekki ósvipaður og í .308, fallbyssunni góðu Ég hafði núllað græjuna á 150m til öryggis og varð því að reikna með að vera fyrir ofan kross á 120m, auk þess sem skotið var niður í móti.
Ég miðaði því ca. á mitt dýr (á hæð) og frekar aftarlega, þar sem markmiðið var að ná aftast í lungun til þess að skemma sem minnst. Ég treysti mér fullkomlega í það þar sem ég vissi að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af nákvæmni riffilsins/kúlunnar og var því fullur sjálfstraust í því að skjóta aftarlega á dýrið. Skoti heppnaðist svona líka vel. Ca. 3,0 cm fyrir ofan mitt dýr (á hæð) og nákvæmlega þar sem ég ætlaði mér að setja það Það var líka gott að ég setti kúluna svona aftarlega í dýrið þar sem ég hafði ekki alveg áttað mig á því að hann stóð aðeins skakkur á mig og var útgatið því ekki langt frá því að skemma kjöt (s.s. framar á dýrinu), en slapp þó þokkalega.
Ferillinn ætti að vera ca. svona með þessari kúlu:
100m +2,8 cm
125m +2,0 cm
150m +0,0 cm
175m -3,2 cm
200m -7,7 cm
225m -13,5 cm
250m -20,6 cm
275m -29,1 cm
300m -39,1 cm
Ég ætlaði mér svo sem ekki að skjóta dýrið á lengri færum (finnst það óþarfa áhætta, ef hægt er að komast nær) en hafði þó lært inn á fallið og hvar ég þyrfti að hafa dýrið í krossinum ef til þess kæmi.

- 19 Ágú 2012 17:15
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Þakka hrósið Vona að menn, jú og konur ef einhverjar skyldu leynast hér, njóti lestursins og myndanna (þótt fleiri hefðu mátt vera). Maður lærði alveg ótrúlega margt í þessari ógleymanlegu ferð sem á án efa eftir að nýtast manni í veiðum framtíðarinnar
P.S. Sjónaukinn er náttúrulega bara flottur fyrir svona veiðar, og bara allar veiðar, sérstaklega í ljósi gæða miðað við verð Mæli sterklega með VORTEX sjónaukum, bæði hand- og riffilútgáfum.

- 18 Ágú 2012 15:12
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Fleiri myndir
- 18 Ágú 2012 15:02
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Framhald
Ég fékk ekki mikinn tíma til að njóta þess að hafa tarfana í sigtinu og munda þá og meta. Þeir voru á hægri en öruggri ferð út dalinn og sá ég nú þegar bara aftari hluta hjarðarinnar. Ég hafði þó strax komið auga á fallegan tarf með sérstök horn. Ég benti Helga á hann um leið og hann sagði að hann teldi þetta vera okkar tarf Svo komu fyrirmælin.
H: "Hann er í góðu færi... passaðu þig bara á steinunum fyrir framan þig."
*Lít meðfram hlaupi aftur - All clear*
Ég: "Hvað er þetta langt?"
H: "Spot on, um 120 metrar niður á við. Miðjan bóg!"
Ég: "Ok"
H: "Hann er góður." "Færið er flott!"
.....
Ég: "Á ég að taka hann?"
H: "Já, eftir hverju bíður þú? Bara þegar þú ert ready!"
Ég: "Ó, ok" ..... BOOM!
Svona getur maður stundum verið tregur Þetta var s.s. smá misskilningur hjá mér um hvernig hann gæfi grænt ljós en þetta hafðist allt að lokum Færið reyndist svo vera 118-9 metrar og var dýrið fellt kl. 09:50 með Tikku T3 Varmint 6.5x55 SE, 140 gr. Sierra GameKing með 46 grain af N-160 á bakvið.
Það þurfti auðvitað að taka eina sigurpósu, en ekki fyrr en Helgi var búinn að maka framan í mig, að mér óspurðum, blóði úr dýrinu þar sem þetta var fyrsta dýrið
Honum fannst þetta nú allt of stór (96 kg.) og fallegur tarfur (með sérstök horn) fyrir fyrsta dýr enda búinn að grínast með það alla leiðina að hann mundi nú bara láta mig skjóta einhvern lítinn, ræfilslegan 2 vetra tarf ef hann gæti, svo að ég hefði nú rúm til þess að bæta mig og kæmi örugglega aftur
Eftir að búið var að gera að tók við ganga til baka ca. 1,6 km að bílnum og hugsaði ég auðvitað til þess hve gott það hefði nú verið að hafa sexhjól líkt og daginn áður. En þetta er nú bara allt partur af þessu og hefði líklega ekki verið jafn eftirminnilegt ef maður hefðir ekki þurft að drösla flykkinu alla þessa vegalengd
Kl. 15:00 þann 12. ágúst vorum við búnir að flá og ganga frá dýrinu, en þá höfðum við verið fyrir austan í ca. 42 klst. og fellt þessi tvö dýr sem við höfðum planað 5-6 daga í Ógleymanleg ferð sem fer í sögubækurnar. Ég vil að lokum þakka þeim Reimari og Helga fyrir að gera þessa ferð að eins skemmtilegri upplifun og hún var

- 18 Ágú 2012 14:18
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Sælir veiðimenn
Ég ætlaði nú að finna mér betri/meiri tíma til þess að skrifa skemmtilega veiðisögu og vinna myndirnar betur en þetta verður að duga. Ég skrifa þetta jafn mikið fyrir mig (til að eiga skráð) og fyrir ykkur, þannig að ef þið hafið ekki tíma til að lesa þetta allt þá geti þið skrollað niður að myndunum og lesið það helsta. Biðst afsökunar á myndgæðunum fyrirfram (símamyndir að mestu).
Veiðiferðin
Við frændurnir lögðum af stað um hádegisbil föstudaginn 10. ágúst með veiðileyfi á tvo tarfa, annan á svæði 6 en hinn á svæði 4. Dagskráin var sex daga veiðiferð fyrir austan, frá föstudegi til fimmtudags, þar sem frændi minn átti lau. og sun. á svæði 6 og ég átti þri. og mið. á svæði 4. Við höfðum gistingu á Egilsstöðum og eftir stutt stopp hjá Reimari leiðsögumanni, þar sem game-plan morgundagsins var ákveðið, var haldið á náttstað. Illa gekk að sofna það kvöldi þar sem mikill spenna var í loftinu fyrir fyrstu hreindýraveiðina.
Að morgni 11. ágúst héldum við af stað "út á hraun" þar sem litast átti um eftir föngulegum tarfahópi sem Reimar hafði séð daginn áður. Eftir nokkur spotting-stopp og smá vélarvandræði sáum við ung-tarfahóp (5-6 stk.) sem kom hlaupandi í áttina að okkur, undan vindi, og var ekkert á þeim skónum að stoppa. Veiðimaðurinn, í samráði við leiðsögumann, ákvað hins vegar að leyfa þeim að hlaupa óáreittum. Þetta var jú snemma dags á fyrsta degi í veiði og þeir töldu sig geta gert betur Við héldum því áfram og mættum stuttu seinna tveimur bílum þar sem veiðimenn voru á leið til baka að sækja sexhjól. Þeir höfðu þá tekið einn tarf úr hópnum inni við Eyjabakka.
Eftir stutt spjall um daginn og veginn héldum við áfram og enduðum á góðum "útsýnispalli" þar sem við sáum vel yfir Eyjabakkana og inn að jökli. Þar komum við auga á stóran hóp dýra inni í friðlandinu og vorum frekar svekktir með það þar sem okkur fannst líklegt að tarfahópurinn sem við leituðum að hefði straujað yfir ána kvöldið áður. Við héldum því til baka með stoppum hér og þar til þess að litast um eftir dýrum. Þá var farið að líða að hádegi og héldum við, að ég held, austar (kannski norð-austar) inn á hraunið eftir erfiðum slóða sem leiddi okkur að góðum hól þar sem við sáum yfir stórt svæði. Þar eyddum við góðum tíma í að horfa til suð-austurs inn á hraunið eftir fyrirmælum Reimars. Ekkert sást.
Það var svo fyrir einhverja slysni/leiða sem ég snéri mér við og fór að horfa til norðurs í átt að svokölluðum "Múla" (ef ég man rétt). Reimar taldi nú að ég finndi engin dýr þar en þar sem ekkert hafði sést þá höfðum við svo sem engu að tapa. Fyrir einhverja slysni/byrjendaheppni þá rak ég augun í eitthvað sem reyndist seinna vera mikill fengur. Ég hélt fyrst að ég væri bara að ímynda mér hreindýr úr einhverjum steinum eða flekkjum í landslaginu (enda færið langt, líklega um 2 km) en eftir smá íhugun, og von um að sem minnst grín yrði gert að mér (þið sem þekkið Reimar skiljið þetta) ef þetta reyndust vera rollur eða annað, lét ég Reimar vita. Hann tók upp stóra spotting sjónaukann og við blasti þessi flotta 10-12 dýra tarfahjörð En þetta var nú ekki alveg fullkomið því á sama tíma sá hann veiðimenn nálgast dýrin frá bíl sem var skammt frá. Djö.... við vorum aðeins of seinir. Ojæja, við bíðum bara og sjáum hvað gerist hjá þeim. Þeir hljóta að klára þetta fljótt og örugglega."
Eftir 4 klst. bið, mikið át, mikið spjall og nettan pirring þá skutu þeir loksins og dýrin brunuðu af stað niður eftir "Múlanum", undan vindi, í austur átt (að ég held), alveg í öfuga átt við það sem við höfðum talið að þau mundu fara. Þá var klukkan farin að nálgast 17:00 en við rukum út úr bílnum og hlupum af stað. Það var svo um 18:00 að við þurftum að taka mikilvæga ákvörðun. Við sáum hvar dýrin voru í stalli einum á Grasanesi (Ég er ekki alveg 100% á þessum örnefnum. Mér fróðari menn mega endilega leiðrétta mig ef þeir geta.). Farið var aðeins að dimma og sáum við fram á að við hefðum aðeins 3 klst. til þess að klára dæmið. Spurningin var, taka áhættuna á smá ævintýri (koma dýrinu til baka í myrkri) eða fylgjast bara með ferðum þeirra, spila þetta "safe" og reyna svo að finna þau aftur í fyrramálið. Það tók okkur ekki langan tíma að ákveða þetta....
Við héldum af stað og reyndum að komast fyrir ofan þau í stallana á Grasanesinu. Þau voru þá farin að klífa stallana og stefndu þá í norður (að ég tel). Við fórum hratt yfir og vonuðum það besta Að lokum sáum við í horn og þeir fikruðu sig fram á brún.... BAAMMMM! Það tók þá félaga ekki langan tíma að klára þetta. Ég náði ekki einu sinni að kveikja á myndavélinni, hvað þá koma mér fram á brún. Eftir lá þetta líka svakalega dýr, fellt á rétt undir 100m með .308 (123gr kúlu held ég) og menn föðmuðust og fögnuðu í gleði-/adrenalínvímu. Þetta hafði einungis tekið okkur um 45 min.! (18:45) Þá var bara að gera að, taka myndir og hlaupa svo til baka að ná í sexhjólið Ég var því miður ekki með mína vél með mér en hér eru símamyndir af dýrinu.
Þetta reyndist vera 111 kg. tarfur með gullkrúnu (óstaðfest) og hugsanlega íslandsmet
Þá var haldið heim á leið og vorum við komnir á malbik fyrir kl. 21:00 (myrkur) og vorum helvíti sáttir með að hafa tekið þá ákvörðun að reyna að klára þetta. Á leiðinni hringdi svo Helgi Jensson, leiðsögumaðurinn minn, í mig til þess að forvitnast um hvort ég hefði tök á að taka mitt dýr á sunnudeginum (daginn eftir) og með mánudaginn til vara þar sem þeir dagar höfðu losnað hjá honum Eftir stutta umhugsun þá ákváðum við að reyna að ná 5 tíma svefn (búnir að flá og ganga frá kl. 01:00) og leggja af stað kl. 06:00 á svæði 4 með Helga.
Það var enn minna sofið þá nótt en þá fyrri enda spennan alveg í hámarki. Fyrsta hreindýrið, 2 dögum á undan áætlun og sést hafði til allt að 90 "tudda" uppi á Aurum dagana áður skv. Helga Við héldum af stað skv. áætlun og fórum upp á Sauðahlíðarfjall austan megin við Köldukvísl í átt suður með Fagradalinum. Það var enn verri og hægfarnari slóði en daginn áður en upp fórum við að lokum. Það var svo á öðru scoping-stoppi að Helgi kom auga á dýr, ofarlega vestanmegin við Kvíslina, uppi við Sandárháls og það af alveg ótrúlegu færi. Ég tók því miður ekki mynd af því og get ekki ímyndað mér hvað þetta var langt, en mundi giska á amk. einhverja 3-4 km.! Við færðum okkur nær eftir slóðanum þangað til við höfðum aðeins einn hól á milli okkar og dýranna og þurftum þ.a.l. að skilja bílinn eftir. Við héldum þá til vesturs niður að Köldukvísl og inn með henni í suðurátt til þess að halda okkur úr augsýn og taldi Helgi best að koma neðan að dýrunum þar sem honum sýndist þau vera að færa sig neðar og neðar í brekkunni.
Við fikruðum okkur inn með Kvíslinni með reglulegum stoppum þar sem staðfest var að dýrin væru enn á sama stað. Þegar við komum svo inn undir botn dalsins sem Kvíslin liggur í var byrjað að klífa og sjá hversu nálægt við kæmumst. Eftir smá puð og skrið þá komumst við að þeirri niðurstöðu að dýrin væru enn of ofarlega í brekkunni til þess að komast í færi, óséðir. Aftur var því komið að því að taka ákvörðun um hvort bíða ætti og sjá hvort þau kæmu neðar og færðu sig í færi, eða... ganga til baka og reyna að komast upp, ofar í brekkuna í færi. Við eins og áður vorum ekki lengi að ákveða það að halda af stað og reyna að komast í betra færi og leist Helga vel á þá ákvörðun. Ég átti eftir að sjá aðeins eftir henni stuttu seinna. Við fórum, eins og jójó, upp í hverja einustu sprænu, sprungu og gil á leiðinni en ekkert gekk. Á þessum tíma fengum við að kynnast því í hve góðu formi Helgi er þar sem við eltum hann másandi og blásandi, þrátt fyrir að vera í þokkalegu formi, á meðan hann blés ekki úr nös! Við enduðum á því að ganga alveg fyrir Sandárhálsinn þar sem við gátum komist upp á hann og vorum því komnir alveg á sama stað nema fyrir ofan dýrin Þegar upp á Hálsinn var komið var útlitið ekki gott og betra að hafa hraðar hendur þar sem þokubakki hafði hrannast upp ofar í fjallinu.
Þá var komið að því ... Við Helgi skriðum fram á brúnina og munduðum vopnin.
Framhald í næsta pósti vegna takmarkana á viðhengjum

- 06 Ágú 2012 20:01
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7747
Re: Á hreindýraveiðum
Sælir
Ég held til veiða næstu helgi og verð vonandi kominn aftur til byggða með tarf og sögu/myndefni þann 16. ágúst. Deili því með ykkur þegar þar að kemur