Sælir.
Ég valdi 270 í könnuninni þar sem ég er með einn slíkan og líkar vel, enda var ég búinn að hugsa lengi og pæla mig bláann í framan yfir bókum og tölvunni um hvaða kalíber ég ætti að fá mér. Niðurstaðan var 270 fram yfir 6,5x284 vegna hlaupendingar. 223inn er hugsaður í öll smáverkin en 270 í hreindýr og ef ég myndi bregða undir mig betri fætinum og leggjast í víking á erlendri grundu
EN minns langar samt í 6,5x284 enda er flugeiginleiki 6,5 kúlunnar bara góður og ekki skemmir að fá hana á aðeins meiri ferð
Svo er maður alltaf að rekast á einhver spennandi hylki á veraldarvefnum og verða voða spenntur yfir þeim og spá og spekúlera. Ég held að við séum nefnilega hálfgerðir gullfiskar, við sjáum eitthvað nýtt og verðum alveg úúúúh-----eitthvað nýtt úúúúh----eitthvað nýtt úúúúh og svo framvegis
Kveðja Keli
Search found 1 match
- 19 Dec 2012 17:29
- Spjallborð: Kannanir
- Umræða: Uppáhalds hylkið
- Svör: 24
- Skoðanir: 7228