Líklega er réttast að leita að kúlum sömu gerðar og með svipað Sectional Density (SD) við samanburð á milli ólíkra skothylkja. Til dæmis mætti bera saman 115 grains kúlu í .25-06 Remington (SD .0249) og 165 grains kúlu í .308 Winchester (SD .0248). Samanburður á hleðslutöflum í Nosler 6 bókinni sýnir að .25-06 Remington er töluvert mikið hraðari en .308 Winchester með þessum kúluþyngdum.Ég skoða bara hleðslutöflur fyrir bæði hylkin t.d. http://www.lapua.com/en/products/reload ... relodata/5
og lít svo á hraðatölurnar fyrir svipað þungar kúlur.
Sigurður veiðimeistari Aðalsteinsson er hrifinn af léttum kúlum á miklum hraða. Hann byggir það á langri reynslu af hreindýraveiðum og ekki síst því að hafa gert að óteljandi hreindýrum. Hreindýr eru ekki sérlega skothörð sé skotið fyrir aftan bóg (lungnaskot) eða í haus. Mörg hreindýr hafa verið felld með kúlum sem þykja of veikbyggðar á stærri bráð eins og t.d. elg eins og Nosler BT eða Hornady SST.
Það hefur verið forvitnileg umræða í nágrannalöndum um blýmengun í kjöti frá byssukúlum sem splundrast mjög í bráðinni. Þess vegna virðist vera tilhneiging til að færa sig yfir í sterkbyggðari kúlur (bonded) eða úr einsleitu efni (homogen) til að krydda ekki villibráðina með blýi.
Hver veiðimaður velur sér svo veiðikúlu eftir eigin sannfæringu því það er mikilvægt að treysta bæði kúlunni, rifflinum og sjálfum sér á veiðislóð.