Nú skil ég ekki alveg hvað þú ert að fara með mörkin Einar, þau eru til og hafa verið dregin. Lög og gildandi reglur gera það. Hvort okkur finnst reglurnar góðar eða ekki er annað mál, en þær eru þarna.E.Har skrifaði:Hárrét Georg.
En þarna er í raun vandinn. Hvar á að draga mörkin.
Ég treisti mér ekki til þess. Ég er alveg sammála því að klykkhaus með hreindyrariffil er örugglega hættulegri en klikkhaus með glokk.
Varðandi Árbæjarmálið þá hefur það ekkert með málið að gera, hann var ekki með leyfi og átti ekki byssuna. Það vandamál er af allt öðrum toga en það sem snýr beint að okkur sem eigum lögleg skotvopn og notum þau á löglegan máta.
Hinsvegar sýnir einmitt Árbæjarmálið að ef vilji er fyrir hendi þá finnur "pakk" sér leiðir til að verða sér úti um byssur sama hvað hver segir eða gerir, smygl eða stuldir.
Varðandi geymslu á skotvopnum þá var gerð nokkuð merkileg rannsókn á gildi byssuskápa í Svíþjóð árið 2012:
http://svenskjakt.se/Start/Nyheter/2012 ... igt-brott/
Niðurstaðan er pínu sláandi, Þjófnaður á skotvopnum er afar fágætur og hertar reglur um geymslu skotvopna hafa engin áhrif á þjófnaði og enn fremur að brot framin með skotvopnum eru sárasjaldgæf.
Ætli þjófurinn sér að stela skotvopnum þá gerir hann það, skápurinn er brotinn upp eða hreinlega fjarlægður í heild sinni.
Að "pakk" sé á ferðinni hefur ekkert með okkur "góðu gæjana" að gera, "pakkið" kemur ALLTAF til með að eignast skotvopn hversu vel sem við læsum okkar byssur inni eða hversu takmörkuð byssueign verður í landinu.