Sæll,
Ef þú villt setja inn mynd þá verður þú að vera í "Full Editor" glugganum (kemur upp sjálfkrafa ef þú er að setja inn nýjan póst en þarft að smella á takkann 'Full Editor' ef þú er að nota "Quick Reply').
Þegar að þú ert í "Full Editor", þá smellir þú á valflipann "Bæta við viðhengi" og þá getur þú slegið inn skráarheiti eða notað "Browse" takkann til að finna myndina á tölvunni þinni.
Þegar að þú ert búinn að finna myndina þá smellir þú síðan á "Bæta við skrá" takkann og þá hleðst myndin upp.
Þegar að myndin er komin inn á vefþjóninn (ef myndin er ekki of stór og er af réttri skráartegun) þá birtist nýr valkostur: "Fella inn mynd" og ef þú smellir á þann takka þá verður myndinni skotið inn í póstinn hjá þér þar sem að bendillinn er staddur. Þú sérð ekki myndina en sérð í póstinum sem þú ert að skrifa texta sem vísar á myndina, til að sjá myndina í póstinum áður en þú sendir hann, smelltu þá á "Skoða" takkann.
Vona að þetta hjálpi.
Search found 1 match
Til baka í “Að setja inn myndir á vefinn”
- 20 May 2012 21:54
- Spjallborð: Leiðbeiningar
- Umræða: Að setja inn myndir á vefinn
- Svör: 3
- Skoðanir: 3834