Search found 4 matches
Til baka í “Gott kvöld í veiðinni”
- 04 Jun 2012 14:12
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Gott kvöld í veiðinni
- Svör: 16
- Skoðanir: 6292
Re: Gott kvöld í veiðinni
Flottur!
- 04 Jun 2012 09:05
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Gott kvöld í veiðinni
- Svör: 16
- Skoðanir: 6292
Re: Gott kvöld í veiðinni
Ég er að veiða í norður hluta Ungverjalands (rétt við landamæri Slóvakíu) en bý reyndar rétt fyrir utan Búdapest (um það bil 2 tíma akstur í veiðihúsið frá heimilinu).
Hér er google tengill inn á þorpið þar sem veiðihúsið mitt er:
http://maps.google.com/maps?f=d&source= ... iwloc=ddw0
Annars var helgin nokkuð "týpisk" veiðihelgi:
- Föstudagur: náði að taka tvö svín
- Laugardagur: sá hjartarkú, ref, 8 gyltur og ótalinn fjölda af grísum. Ekkert til að skjóta þetta kvöld
- Sunnudagur: sá tvo krónhirti, 2 búkka, 6 rádýrs kýr einn rebba en engin svín. Ekkert til að skjóta þetta kvöld.
Sá fjöldi af grísum sem maður er að sjá gefur virkilega góðar vonir fyrir haust og vetur þegar að grísirnir verða orðnir nógu stórir til að veiða þá.
Sem sagt veiði, ekkert er öruggt en gamanið er að reyna og að vera úti í náttúrinni.
Svona inn á milli veiða þá var maður í landaframleiðslunni (lögleg hér í Ungverjalandi):
Ef þú hefur áhuga á að kíkja í heimsókn og reyna við veiðina hér þá sendu endilega á mig tölvupóst og við finnum eitthvað út úr þessu: gkristjansson@axelero.hu

- 02 Jun 2012 15:20
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Gott kvöld í veiðinni
- Svör: 16
- Skoðanir: 6292
Re: Gott kvöld í veiðinni
Mér finnst villisvínalkjötið af ungum svínum mjög gott en þetta er nátturulega villibráð þannig að það er lítið hægt að bera þetta saman við fituríka ali-svínakjötið.
Með eldri villisvínin þá þarf að kokka kjötið helst í þrýstipotti og ef rétt er að staðið þá getur þetta verið herramanns matur.
Svo hef ég líka verið að prufa að reykja þetta kjöt og það kemur mjög vel út.

- 02 Jun 2012 07:45
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Gott kvöld í veiðinni
- Svör: 16
- Skoðanir: 6292
Gott kvöld í veiðinni
Jæja,
Hér (eins og annar staðar) er rétt að koma fullt tungl og þegar heiðskýrt er þá er maður með góða skotbirtu langt fram undir morgun.
Að sjálfsögðu er um að gera að nota sér þetta þannig að ég skellti mér út í gærkvöldi.
Ekki þurfti ég að bíða lengi í turninum þangað til að hópur af svínum mætti á svæðið. Í hópnum voru 5 gyltur, 15-20 grísir og 6 eins til tveggja ára gömul svín.
Nú var aðal málið að bíða þess að eitt af þessum 6 ungu svínum gæfu á sér hreint færi og viti menn eitt þeirra gerðist "anti social" og tók sig út úr hópnum: (lærdómurinn hér (fyrir svínin) er sjálfsagt að vera ekkert að skera sig út úr hópnum, það hefur ekki alltaf góðar afleiðingar.).
Þar sem klukkan var ekki orðin neitt alvarlegt (20:15), þá ákvað ég að færa mig um set og fara á annað svæði og prufa þar líka.
Ekki var langt á milli svæðanna (sirka 5 Km), þannig að ég var sestur upp í seinni turninn hálftíma seinna.
Eftir stutta setu mætti eitt svín á svæðið en gaf mér aldrei gott færi á að sjá sig almennilega þannig að ég gat ekki verið fullviss hvort þetta væri göltur eða gylta. Dýrið tók gott kjaftfylli af fóðri upp í sig og rauk með það aftur inn í kjarrið. 2-3 mínutum síðar mætir síðan gylta með þrjá grísi inn á svæðið og við það kemur fyrsta svínið aftur inn og rekur gyltuna og grísina burt. Jæja ekkert svín er svona ókurteist nema það sé göltur þannig að nú fór ekkert á milli mála um kyngreininguna á dýrinu.
Þá var, að sjálfsögðu, verkfærið sett upp á öxl og farið að rýna í krosshárin (talsvert farið að rökkva en gott tunglskin). Í stuttu máli sagt þá stillti hann sér upp og málaði á sig skotmark eftir um það bil 5 mínútur og maður tók (mjúklega) í gikkinn.
Hann hljóp jú einhverja 20 metra inn í kjarrið en komst þá að þeirri niðurstöðu að sagan væri nú öll sögð og ekki þýddi mikið að berjast á móti því. Þetta var síðan niðurstaðan: Og síðan bara til að átta sig á stærðar hlutföllum (það er að segja það var ekki verið að bjóða svíninu sígarettu): Það á eftir að gera að honum en hann er sennilega 90-100 Kg með 17-18cm tennur.