Það stendur aftur á móti skýrt í greinini : "Hún segir refastofninn hafa stækkað og þess vegna ekki óeðlilegt að menn verði varir við refi í borgarlandinu. Refir hafa sést við Reykjanesbrautina og dæmi eru um að ekið hafi verið á þá. "E.Har skrifaði:Áhugaverð nálgun, ref fjölgar ekki un bygð færist nær honum!
Ég held að tilgangurinn með greini sé einmitt sá að benda á að þar sem byggðin er að stækka, og þar af leiðandi að færast nær heimkynum refa, er orðið algengara að sjá refi í og við byggð. Sérstaklega þar sem ref hefur einnig fjölgað..
Svo er bara farið yfir að gott sé að ganga vel frá matarleyfum og leggja ekki út æti fyrir rebba... sem er held ég bara gott mál ekki satt?
Ekki það að ég skilji ekki vandann með fjölgun refa eða það að ég haldi eitthvað sérstaklega uppá þessa konu, heldur finnst mér bara þessi nálgun ykkar á þessa grein slitin úr samhengi og væntanlega byggð á einhverjum misskilningi.