Hef ekki enn svarað. En set spurningarmerki við þessa veiði, eða spurningu. Bæði vegna vanþekkingar minnar á sportinu og einnig ef verið er að tala um veiðar á íslandi þá er hún auðvitað frekar takmörkuð. Ég hreinlega veit ekki hvort menn telji sig geta hitt gæs, önd eða hvað þá rjúpu með boga á x færi á þeim stutta tíma sem færið gefst. Og ef menn hitta, hvernig lítur bráðin þá út..? En þetta er allt önnur spurning ef eingöngu er átt við hreindýraveiðar. Þá finnst mér í lagi að athuga slíkar veiðar. Skil menn sem æfa bogfimi af krafti og telja sig nægilega góðar "skyttur" að þeir vilji prufa sig og tækin sín á veiðum. Síðan væru auðvitað samskonar reglur og um riffilkúlur.. Nota sérstaka veiðiodda osfv. Skotpróf og tilheyrandi. Samt er þetta kanski frekar á færi hreindýraleiðsögumanna að svara..
Merki þá við- Vil að bogaveiðar verði leyfðar (hreindýraveiðar).
Og líka - Svara en hef ekki kynnt mér málið.
Search found 1 match
Til baka í “Ertu fylgjandi eða á móti bogveiðum?”
- 18 Jun 2012 22:20
- Spjallborð: Kannanir
- Umræða: Ertu fylgjandi eða á móti bogveiðum?
- Svör: 12
- Skoðanir: 4532