Menn eru nú langt því frá að vera sammála um þetta með ljóta grúppu á 100 M sem þéttist svo á 300. Ég hef svo sem engar forsendur til þess að dæma um það, en það má færa rök fyrir því að grúppa sem er slöpp á 100 metrum getur aldrei orðið betri á 300 metrum en grúppan sem er mjög þétt á 100M, skotin með sömu kúlu við nákvæmlega sömu aðstæður. Því ef að grúppan er mjög þétt á 100 metrum þá er kúlan líklega löngu búin að stabílera sig.
Ég man eftir að hafa lesið þráð á 6mmbr þar sem Eric Cortina var að rífast við aðra snillinga um akkúrat þetta málefni.
Fann þráðinn aftur eftir stutta leit...
Gæti verið skemmtileg lesning fyrir einhverja sem hafa lítið að gera og langar að mynda sér skoðun á þessu málefni út frá því hvað kanar sem hafa prófað ýmislegt hafa um málið að segja :
Þráður um "the myth" að hleðslur sem eru lélegar á 100 geti orðið góðar á 300 eða lengra úti.
Search found 1 match
Til baka í “Fyrstu OCW hleðslurnar”
- 03 Dec 2014 01:15
- Spjallborð: Endurhleðsla
- Umræða: Fyrstu OCW hleðslurnar
- Svör: 13
- Skoðanir: 6415