Ha ha ha... Ég verð að viðurkenna að ég bar einungis hag þinn fyrir brjósti Þorvaldur þegar ég sagði að pressa bæri þennan sjónauka! En um leið hélt ég í einfeldni minni að ekki væri löglegt að flytja svona dót inn, það er svosem ágætt að það hefur verið leiðrétt.
Það væri kannski skynsamlegt að fá eitthvað review á gripinn hérna inn. Er hann kominn á og í notkun, á hvernig riffil og í hvaða cal er hann, fáum við ef til vill að sjá grúppur?
Ég held reyndar að flestir sem eru á svipaðri línu og ég og vilja helst bara nota það allra besta geri sér alveg grein fyrir því að mjög margt annað virkar alveg líka. Sumir þurfa bara að réttlæta dýru kaupinn fyrir sér...
Ég tel t.d. ekki að ég sé meiri eða minni karlmaður eftir því hvernig sjónauka ég á og ber mig yfirhöfuð ekki saman við aðra. Það getur vel verið að þú sért á annari skoðun og það er þá bara alveg í lagi mín vegna!
Það er hægt að ganga mjög langt í þessum riffil rugli og ég viðurkenni fúslega að ég er einn af þeim sem ganga frekar langt, en það er meira svona mér til ánægju, en að ég sé að meta og máta mig við aðra.
Search found 9 matches
Til baka í “Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?”
- 30 Nov 2015 13:24
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
- 03 Oct 2015 10:43
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
valdur skrifaði:Og ég keypti mér minn fyrsta Zeiss sjónauka. Glæsilegan grip og kostaði heila 103 dali!
Nú er að sjá hvort ég get ekki skotið fyrir horn með honum.
Sæll Þorvaldur, þú náttúrulega gast ekki um upprunalandið, né hvot að sjónaukinn væri nýr í upphaflega póstinum.valdur skrifaði:Það sem ég var að spekúlera með því að segja frá þessum kjarakaupum á zeiss sjónauka var: Ætli enginn höggvi eftir verðinu, 108 dölum eða landinu sem gripurinn var keyptur frá, Kína?
En nú var það ekki og því gleðst ég yfir mínum afburða sjónauka, zeiss conquest, sem kostaði 180 þúsundum minna en slíkur gripur í virtri veiðiverslun í höfuðborginni. Þetta getur ekki klikkað!
Það eru til Zeiss sjónaukar út um allan heim frá öllum tímum og í öllum verðflokkum.
Bendi þér á þennan hér máli mínu til stuðnings.
En ef þú hefur keypt nýjan Zeiss Conquest frá Kína... þá horfir málið svolítið öðruvísi við og Tollurinn hefði að sjálfsögðu átt að gera gripinn upptækan og senda hann beina leið í pressuna.
- 28 Sep 2015 22:43
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sæll Valdur
Til þess að skjóta fyrir horn get ég ímyndað mér að þú þurfir riffil með bogið hlaup, ef þú ert hins vegar með .308 þá ætti að vera nokkuð auðvelt að skjóta yfir holt og hæðir þegar þú ert kominn með Zeiss.
Glerið er líklega nógu gott til að sjá í gegnum holt og hæðir og það er víst að hið geysilega fjölhæfa cal .308 er fært um að setja í fallegan bogadreiginn feril yfir hvaða hæð sem er.

- 15 Oct 2014 22:40
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Heh... ég er að sjálfsögðu ekki hörundsár og þarf heldur ekkert að afsaka! Því ég hef tamið mér þann góða sið að hafa alltaf rétt fyrir mér og það er náttúrulega þannig í þessu tilfelli eins og öðrum!Stebbi min......auðvitað eru öll dýrin í skóginum vinir, auðvitað erum við vinir líka.....allavega lít ég svo á, ég vona að þú geri það líka....þrátt fyrir smá hártoganir, en það er nú bara minn stíll og mér finnst enn skemmtilegra þegar það ber þann árangur að menn verða hörundsárir og fara að velta sér upp úr allskonar afsökunum
Fótbolta commentið var að sjálfsögðu góðlátlegt grín, enda opnaðir þú á það! Vinir mínir í núll-sex söfnuðinum taka því tæplega ílla! Enda hef ég ekki mjög sterkar skoðanir á því hvað menn eiga og hef oft sagt það að caliberið skiptir engu máli ef menn nenna ekki að æfa sig að skjóta og læra á sinn riffil.
Þetta finnst mér snildar flott Ingvar!!! Ef þetta virkar svona vel, þá myndi ég líklega líka skoða þetta frekar en að skemma skeptið með DeWaltinum! "Svo lengi lærir sem lifir"!Ég var einmitt búinn að vera í þessum pælingum með sjónaukann hjá mér, hann var alltof hátt og ég náði ekki að liggja þétt á skeptinu (á Sako 75) og horfa í gegnum sjónaukann.
Eftir nokkra yfirlegu á veraldarvefnum rakst ég á þetta:
http://www.bradleycheekrest.com/Bradley ... le_c11.htm
- 13 Oct 2014 13:31
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég hélt að við værum vinir Siggi... samt hjólar þú í mig með tveggjafóta tæklingu og ættir réttilega að fá rauða spjaldið að launum! Núll-Sex söfnuðurinn hyllir þessa aðför þína eins og við var að búast!!!Veiðimeistarinn skrifaði:Jææææja Stebbi minn, bara alltaf í boltanum, á nú að bakka út úr öllu saman þú finnur riffilgarminum allt til foráttu og vilt breyta honum svona og svona mikð og klikkir svo út með því að segja að eftir svo og svo miklar breytingar mundir þú ekki einu sinni velja þetta apparat sem fyrsta kost.
Sveiattan, hér hafa menn nú reynt að standa og falla með því sem þeir segja, en reka ekki í bakkgírinn með skottið undir bíl, skott sem nær alveg fram að framhásingu, og vilja ekki kannast við neitt
En ef þú setur nú upp gleraugun aftur og lest fyrri póstinn minn yfir þá sérðu að ég er að gera allt annað en "að finna honum allt til foráttu" heldur að láta í ljós mína skoðun á því hvernig má gera góðan riffil enn betri fyrir atvinnu skyttu eins og Jón er.
Að fenginni reynslu veit ég að þungt hlaup sem er 27" langt er í það lengsta til þess að brölta með á hreindýraveiðar. Ástæðan er einföld, riffillinn er frekar framþungur og leitast við að taka fram úr manni þegar maður skríður með hann á bakinu að hreindýrahjörð.
Af sömu ástæðu er gott að nota tvífót sem stendur fram úr forskeptinu þ.e. að færa balance-inn aftar þegar maður miðar, annar kostur sem þessir fætur hafa umfram Harris er sá að það er gott að leggjast í hann "load the bipod". Þó ég hafi þessa skoðun þá á ég Harris fót sjálfur og finnst hann ágætur, held bara að hinn sé betri... Talandi um Harris, hver var aftur þín skoðun á honum?
Sumir verða svona þegar þeir eldast! Þeir vilja ekki þróast neitt eða læra neitt nýtt... halda bara að það sem þeir eiga sé það besta sem til er og engu má breyta eða bæta!!!
Þar sem caliberið er 308, þá þarf hann ekki svona langt hlaup til þess að skjóta með mjög góðri nákvæmni út á 5 - 600 metra færi.
Það að saga hlaupið með járnsög, snitta og Crown-a uppá nýtt, er nú ekki mikill kostnaður, og hljóðdeyfirinn kostar það sama þegar leyfið er komið, hvort sem hann er á .308, núll-sex eða 6,5 - 284.
Að freistast til að velja 7mm 08 frekar, þýðir ekki að ég myndi taka .308 hlaupið af og henda því eða hvað? Þetta er eitthvað sem er hægt að hafa í huga til framtíðar ef Jóni tekst eitthverntíman að skjóta út þetta hlaup. Svo er líka ekki bannað að eiga tvö hlaup á einn riffil! Tvö 08 hylki eru tvisvar sinnum betri en eitt!!!
Það munda DeWalt-inn kostar náttúrulega ekki neitt og kinnpúðan má tálga úr hvaða spítu sem er.
Ryan Cleckner
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=COoXVpGfXQE[/youtube]
- 12 Oct 2014 22:24
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ha ha... þetta er svolítið DV legt komment hjá þér Siggi!
Til að hafa allt rétt þá þarfnast þessi riffill ekki neinna lagfæringa... heldur var ég að lýsa þeim hugleiðingum sem brenna á mér!
Það er að segja hvernig setup ég myndi vilja hafa... sem er ekki mjög frábrugðið þessu. Get farið yfir það hvers vegna síðar!

- 12 Oct 2014 20:42
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sæll Jón Magnús
Þetta þykir mér verulega eigulegur gripur sem þú ert kominn með í hendurnar þarna.
1. Úrvarls sjónauki og kannski mest spennandi sjónaukinn fyrir peninginn að mínu mati. Ef ég væri að kaupa mér sjónauka á veiðiriffil í dag sem ég vildi líka getað notað í mót, þá býst ég við að ég myndi fá mér þennan sjónauka.
2. Fínt skepti, er þetta REM Sendero skepti?
3. Er Remington gikkur í honum eða aftermarket?
Ég er alveg kominn á það að notagildið á að vera það sem ræður för. Þess vegna myndi ég stytta á honum hlaupið um 4 - 5 tommur og setja uppáskrúfaðan hljóðdempara á hann ef ég fengi leyfi fyrir slíku.
Svo myndi ég líka munda DeWalt-inn og setja svona kinnpúða að hætti Ryan Cleckner á hann og tvífót sem stendur framúr skeptinu.
Þá væri þetta að verða fullkomið vinnutæki að mínu mati og tuttuguogfimman myndi ekki gera neitt annað en að rykfalla inn í skáp...
Einn fróðleiksmoli um .308!!! 6 - 8 þúsund skot af úrvals nákvæmni! Þó ég myndi mjög líklega freistast til að velja 7mm 08.
Annars mjög flottur riffil, til hamingju með hann.

- 09 Jun 2014 21:06
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þetta er náttúrulega ekta dót Alfreð... velkominn í alvöru skotfimi!
- 01 May 2014 22:11
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 46586
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sinclair Neck Turner... þennan græna NT-4000 held ég að hann heiti.
Svo fékk brói í sömu sendingu Redding Competition Die-a í .284 Win riffilinn. Þeir eru ekki ókeypis!
Svo fékk brói í sömu sendingu Redding Competition Die-a í .284 Win riffilinn. Þeir eru ekki ókeypis!