Sæll Siggi
Hefur einhver veiðimaður bógskotið hreindýr með Lapua Scenar hjá þér? Ég er svolítið forvitinn vegna þess að ég hef skotið og séð aðra skjóta hreindýr með bæði Lapua Scenar og Berger Hunting VLD og ég efast um að Berger kúlan sé að skila meiri höggþunga eftir í hreindýrinu en Scenar. Þá á ég við í 6,5 mm með 120 til 130 grs kúlum.
Mínar Berger Hunting kúlur hafa flogið í gegn um hreindýrin og þau hlaupið upp í 50 - 70 metra áður en þau detta steindauð niður. Þó sum hafi líka dottið nánast á staðnum.
168 grs Berger Hunting úr 7 mm steindrepur dýr sem hún hittir sæmilega á lungna svæðið.
Mér finnst nú personulega allt í lagi hjá UST að senda fyrirspurn á framleiðanda kúlunar, sýnir kannski smá vilja til að leita sér upplýsinga ef menn hafa ekki reynsluna, enda litu menn svo á að þessi kúla væri ekki æskileg til veiða, frekar en aðrar markkúlur svo það er vandræðum háð að verða sér úti um reynslu í notkun hennar til hreindýraveiða.
Ég er sjálfur svolítið á báðum áttum í þessum kúlumálum.
Ljótasta út sár (ef sár skildi kalla) sem ég hef séð var eftir Ballistic Tip úr 300 WM. Það vantaði út hliðina nánast á dýrið og það var blóðhlaupið aftur á læri... Helmingurinn af frampartinum var gjörsamlega ónýtur.
Search found 7 matches
Til baka í “Skotpróf UST 2015”
- 23 Jun 2015 22:52
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
- 20 Jun 2015 12:58
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Re: Skotpróf UST 2015
Ég tek hatt minn ofan fyrir þér Jón, þetta er mjög vel gert... eftir að hafa verið að tuða stuttu áður um að þú hefðir betur fengið þér .243...
Það er verst að þú ert líklega búinn að eyðileggja þráðinn með þessu innleggi, nú þorir örugglega enginn annar að setja skífuna sína hérna inn...
Svo er þetta er klárlega 10... kærufrestur er hálftími eftir að skotmóti líkur og enginn gerði athugasemd innan þess tíma, þannig að skorið stendur... enda sýnist mér að þetta sé rétt dæmt hjá Jónasi... get ómögulega lesið undirskriftina hans, en býst við að það hafi verið hann sem tók þig í prófið!
6 mm kúlan kemst varla inn í 9una án þess að snerta annaðhvort 9una eða 10una... þannig að þetta er potþétt inni fyrst hún snertir ekki 9una...
Þar að auki á skotmaðurinn alltaf að njóta vafans!

- 17 Jun 2015 21:56
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Re: Skotpróf UST 2015
Það er eiginlega þannig að þegar maður er kominn með kúlu sem virkar, þá þýðir varla að kaupa minna en 500 til 1000 í einu.
Ég held að það sé sama staða hér sunnanlands með skotprófin, þetta fer mun hægar af stað en í fyrra... Kannski eru menn bara orðnir almennt svona góðar skyttur að þeir hafa litlar sem engar áhyggjur af þessu prófi.

- 15 Jun 2015 19:17
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Re: Skotpróf UST 2015
He he... já það er satt!Gísli Snæ skrifaði:Stundum er þetta svona Stefán
Og hætta að eltast við hraða - það er amk mín reynsla með 260 Rem. Hraði er ekki að skila mér neinu.
Þetta hefur allavega ekki komið eins vel út hjá mér eins og ég vonaði eftir fyrstu tilraunir sem ég gerði, sem snérust að mestu um hraðaprófanir. Ég er þó ekki búinn að gefa alla von upp á bátinn með 203B ennþá. Set kannski inn þráð um það síðar.
Mistök áttu sér stað, sem ég ætla svosem ekki að tíunda hér... enda liti þetta þá kannski bara enn verr út fyrir mig. Nú hef ég ár til að leiðrétta þau, að því gefnu að ég fái úthlutað aftur þá!
Flottur Grímur!
You win some, you lose some...Sveinbjörn V skrifaði:Konur og byssur !!
Ég ætla að vona þín vegna að þú hafir skorað hærra en hún
Það eru til tvær tegundir af keppnisskyttum... þeir sem hafa tapað fyrir konu og þeir sem eiga eftir að tapa fyrir konu... Ég komst í fyrri hópinn fyrir löngu síðan...
Ég get þó huggað mig við að það gekk betur hjá mér að kenna henni að skjóta en þér Ívar... allavega segist hún eitthverntíman í gamladaga hafa fengið að skjóta úr haglabyssu hjá þér og aldrei náð að hitta plastbrúsa á 15 - 20 metra færi, fékk þó nokkrar tilraunir!... þannig að þetta er allt að koma hjá henni...ivarkh skrifaði:Glæsilegt hja Sollu, ekkert verið að hika við þetta!
btw... til lukku með Refinn Ívar! Snyrtilegt!
Spurning hvort þetta endi hjá mér eins og Mid Tompkins... fari bara að hlaða fyrir kellu mína...
Er enginn annar sem tekur mynd af hreindýra skífunni sinni sem er til í að deila?
- 14 Jun 2015 16:21
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Re: Skotpróf UST 2015
Þá er kvikmyndin klár hjá Jóhanni af prófinu mínu...
Stefán Eggert Jónsson tekur skotpróf UST í Höfnum
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_nMSfFVSdi0[/youtube]
Þakka Jóhanni fyrir skemmtilegan dag í gær og skjóta klippingu á videóinu... Fire at will...

- 13 Jun 2015 19:07
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Re: Skotpróf UST 2015
Já nokkuð nett hjá henni... Nú er að bíða og sjá hvernig 50 stiga tilraunin fór hjá bónda hennar í dag!
JAK kvikmyndaði skotprófið mitt í morgun og kemur niðurstöðunni hérna inn þegar búið er að klippa vídeóið til síðar....
Þangað til er mönnum alveg óhætt að setja sínar skífur hingað...
JAK kvikmyndaði skotprófið mitt í morgun og kemur niðurstöðunni hérna inn þegar búið er að klippa vídeóið til síðar....
Þangað til er mönnum alveg óhætt að setja sínar skífur hingað...
- 13 Jun 2015 00:58
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6506
Skotpróf UST 2015
Þá er komið að árlegum viðburði... að þessu sinni er það frúin sem þreytir þolraunina!
Solla tekur skotpróf UST
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=1laCw9stcVE[/youtube]
Það er rétt að geta þess, henni til varnar að hún er bara búin að taka þessi 5 skot sem hún tók á æfingaskífuna síðan í fyrra... Merkilega gott samt!