Sæll Maggi...
Ég hef tekið lærabitana af hreindýrinu og snögg steikt þá á svona grillpönnu (kemur mjög falleg áferð) við frekar háan hita. Þegar steikin er orðin vel brúnuð að utan er henni skutlað í ofnin og kjarnahitamælir stungið sirka í miðja steikina og hún hituð í eldföstu móti upp í 58° svo tek ég hana út og læt hana standa í 5 - 10 mín áður en hún er skorin... Svo nota ég bara salt og pipar til að krydda með.
Þetta er uppskrift að steik sem bráðnar í muni... Ekki fyrir þá sem ekki þola rautt kjet... Well done hreindýrasteik myndi ég drekkja í rabbabarasultu eða henda og panta Pizzu...
Gæsabringur finnst mér gott að hita upp í 72° annars er bókin hans Úlfars náttúrulega biblían í villibráðarsteikum...
Search found 1 match
Til baka í “Villibráðaveisla undirbúin”
- 19 Dec 2012 23:20
- Spjallborð: Verkun og eldamennska
- Umræða: Villibráðaveisla undirbúin
- Svör: 14
- Skoðanir: 5732