Datt í hug að bæta við þennan þráð þar sem ég er búinn að heyra í Bjarna Olesen og honum Bóbó byssusmið, Jóhanni Norðfjörð. Ég var nú eiginlega kominn á það að fara með Bjarna á sauðnautaveiðar á Grænlandi þegar ég heyrði í honum fyrir áramót. Heyrði í honum aftur fyrir stuttu og það er farið að verða nokkuð þéttbókað og lítið laust.
Sá svo á skotveiðispjalli á facebook núna í vikunni að Bóbó er að fara með hóp á hreindýraveiðar í byrjun september og nokkur sæti eru laus. Það er víst á svipuðum slóðum og Stefán og Lax-á eru. Verðið er nú bara eins og að veiða tarf hér heima.
Þetta frestast nú hjá mér fram til næsta árs eins og svo oft áður. Sé þó að maður þarf bara að negla þetta niður og bóka um áramótin. Ekki bíða með að athuga hvort maður fái úthlutað hér heima og hafa Grænland sem varaval þó það virðist vissulega vera möguleiki á að detta þar inn með litlum fyrirvara.
Search found 4 matches
Til baka í “Veiði á Grænlandi”
- 27 Feb 2015 22:32
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Veiði á Grænlandi
- Svör: 11
- Skoðanir: 5019
- 15 Dec 2014 17:17
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Veiði á Grænlandi
- Svör: 11
- Skoðanir: 5019
Re: Veiði á Grænlandi
Sælir félagar og takk fyrir þetta. Já og takk fyrir síðast Siggi. Það er ágætt að hafa Grænland í bakhöndinni ef maður kemst ekki í Jökuldal á næsta ári Annars vorum við að spá í að athuga með gæsaveiðar fyrir austan næsta haust. Sé að það er þráður um það líka.
Það eru sem sagt amk þrír íslenskir aðilar með veiðiferðir til Grænlands. Set mig í samband við þá. Þetta virðast nokkura ára gamlar síður hjá Bjarna og Icelandic hunting club, eru þeir ekki samt ennþá starfandi á Grænlandi?
Hafa spjallvinir reynslu af veiðum með Bjarna og Icelandic hunting club?

- 12 Dec 2014 16:57
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Veiði á Grænlandi
- Svör: 11
- Skoðanir: 5019
Re: Veiði á Grænlandi
Takk fyrir það Þorsteinn. Einhvern tíman hef ég heyrt Bjarna Olsen nefndan varðandi veiði á Grænlandi en google sem allt veit fann enga síðu hjá honum en fann hann nefndan hjá Lax-á.
Hafa spjallvinir veitt á Grænlandi?
Hafa spjallvinir veitt á Grænlandi?
- 10 Dec 2014 00:53
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Veiði á Grænlandi
- Svör: 11
- Skoðanir: 5019
Veiði á Grænlandi
Sælir kappar
Nú hefur mig lengi langað til Grænlands á veiðar. Hef aldrei þangað komið og langar bara að sjá þetta nágrannaland okkar. Miðað við ásóknina í hreindýr hér heima þá er maður að fá úthlutað leyfi á 2-4 ára fresti svo ekki er ósennilegt að maður horfi til Grænlands.
Mig langar að spyrja hvort þið þekkið til hverjir eru að fara með veiðimenn til Grænlands eða eru með operation þar? Þá hvaða reynslu menn hafa af því og aðstöðu hjá þeim? Kostir og gallar?
Veit að Lax-á er með camp þar og býður upp á veiði en eru ekki fleiri?
Það væri gaman að heyra einhverjar reynslusögur líka.