Gaman að sjá að 308 virðist vera að sækja á að nýju eftir nokkur mögur ár.
Annars verð ég nú að segja að við megum nú ekki vera of bókstafstrúa hér varðandi skotprófin, þetta er nú ekki sharía-lög. Nú er ég að fara á mitt fjórða hreindýr eftir að reglur um skotpróf var komið á. Verð ég að viðurkenna að mér finnst ekkert að þessu fyrirkomulagi. Fyrsta árið voru menn kannski aðeins að finna sig og kannski eðlilegt að gagnrýni fylgdi. Við heyrum td ekki mikið kvartað um að verið sé að grilla hlaupinn í dag eins og var fyrst út af 5 mínútna reglunni. Við verðum að horfa til þess hver voru markmið laganna. Það að menn fari æfðir til veiða, með verkfæri sem þeir kunni á og geti treyst. Hvort að menn noti aðra kúlu en prófið var tekið með getur ekki skipt löggjafan máli enda einungis tekið fram að um veiðikúlu skuli verða að ræða. Nú taka sumir prófið jafnvel hálfu ári áður en þeir halda til veiða og ekki þar með sagt að sama kúla sé endilega fáanleg. Þið sjáið að það er heldur ekkert rætt um hleðsluna á bakvið. Held það sé nú alveg ljóst að UST sé nú ekki "out to get you".
Er þetta ekki bara í nokkuð góðum farvegi og ástæðulaust til að breyta þessum reglum sem virðast virka ágætlega? Það koma að sjálfsögðu upp einhver tilfelli á hverju ári þar sem þær henta einhverjum illa en svona í heildina er þetta ekki bara nokkuð gott?
Search found 1 match
Til baka í “Riffilcaliber, þróun milli ára.”
- 19 Oct 2016 16:31
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7574