ég set "Like" á þaðSSigurdarson skrifaði:Engar aftōkur en skrifum og kvittum með nafni. Þakka góðan og málefnalegan vef. Hōldum honum þannig
Siggi
Search found 3 matches
Til baka í “Nafnlausar bleyður!!”
- 03 Feb 2013 11:31
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Nafnlausar bleyður!!
- Svör: 34
- Skoðanir: 4380
Re: Nafnlausar bleyður!!
- 02 Feb 2013 17:29
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Nafnlausar bleyður!!
- Svör: 34
- Skoðanir: 4380
Re: Nafnlausar bleyður!!
Góðan daginn drengirBenni skrifaði:Get ekki sagt annað en að þetta er orðið frekar öfgafullt hérna!
Nafnlausar bleyður? eða kanski menn sem kunna ekki við að hver sem er viti hvar skotvopn sín eru að finna?
Ég allavega kann ekki vel við að hver sem er viti hvað ég á og hvar ég er svo ég hef breitt mínum prófíl.
Ef ég er "nafnlaus bleyða" þá verður bara að hafa það og ég hætti bara að pósta hér!
Kv Benni
Ég get alveg vel skilið það og tekið undir það að vissu leyti að þessi fyrirsögn er kannski fullgróf (fyrir suma) og miðað við tímasetninguna á þessu innleggi mínu þá mætti kannski halda því fram að ég hefði verið búinn að fá mér í stóru tána... en svo var nú alls ekki
Varðandi það að vilja ekki koma fram undir nafni vegna þess að þá veit "pöpullinn" hvað þú/við átt heima og gæti þar af leiðandi fundið skotvopnin þín og stolið þeim, finnst mér vera frekar fáránlegt og eiginlega bara kjánalegt, og mér finnst þessi rök ekki halda vatni.... við búum ekki í US & A.
Ég er líka reglulegur gestur á erlendum spjallsíðum og get alveg tekið undir þetta með þér, þó menn komi fram undir dulnefni þá er umræðan oft á tíðum málefnanleg... en það er líka vegna þess að þeir hafa fjöldan og ef einhver ætlar að vera með eitthvað bull þá hætta menn bara að taka mark á svoleiðis mönnum, en það gerist ekki oft á íslenskum spjallsíðum, venga þess hvað við erum fáir þá er mjög auðvelt að leggja góð spjallsvæði í rúst.Benni skrifaði:Sé nú ekki að það sé skylda að koma fram undir nafni enn svo þú ert ekki laus við mig alveg strax Sigurður
Er á fjölmörgum erlendum spjallsíðum tengdum skotfimi og veiðum og eru þær nær undantekningalaust mjög málefnalegar og kurteisar þótt allar séu með dulnefni.
Ég hugleiddi það að breyta nafninu á þræðinum en ég er ekki hlyntur því vegna þess að þá skekkist sú umfjöllum sem hér hefur komið fram.... ég verð bara að standa og falla með því sem ég set fram hér á netið, en það var ekki ætlun mín að "móðga eða stuða" menn hér og biðst ég velvirðingar ef svo hefur verið.
Ps.
Svo er smá munur á innsláttarvillu eða stafsetningarvillu...þannig að ég bætti við "R" inu sem vantaði í fyrirsögnina á þræðinum.
- 02 Feb 2013 01:49
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Nafnlausar bleyður!!
- Svör: 34
- Skoðanir: 4380
Nafnlausar bleyður!!
Ég var að spá í hvort það væri ekki þjóðráð hjá vefstjóra að eyða aðgangi þeirra manna sem ekki koma fram undir nafni, samanber notandi að nafni KOH, (sem dæmi).
Ef við ætlum að halda þessu spjalli á málefnanlegum nótum þá finnst mér ekkert að þessu!
Það væri hægt að gefa nýskráðum notendum einhvern smá aðlögunartíma (kannski x fjölda pósta) en ef að menn taka ekki við sér þá verður þeim bara úthýst.
Sumir kynnu að segja að það væri ritskoðun og kannki of mikil afskipti af vefnum, en mér finnst þetta í raun bara nauðsynlegt til að þetta spjall endi ekki í svartholi eins og sumar sambærilegar vefsíður.
Ef við ætlum að halda þessu spjalli á málefnanlegum nótum þá finnst mér ekkert að þessu!
Það væri hægt að gefa nýskráðum notendum einhvern smá aðlögunartíma (kannski x fjölda pósta) en ef að menn taka ekki við sér þá verður þeim bara úthýst.
Sumir kynnu að segja að það væri ritskoðun og kannki of mikil afskipti af vefnum, en mér finnst þetta í raun bara nauðsynlegt til að þetta spjall endi ekki í svartholi eins og sumar sambærilegar vefsíður.