Ágæti fóstri.
Nokkuð er til í þeim orðum þínum að mönnum hefur gengið vel með savage mkII á okkar heimaslóðum en tveir þeirra líka í höndum manna sem eru búnir að keppa um all nokkurt skeið.
En við getum líka horft á annað dæmi úr okkar hópi því piltur einn, sem ég mundi flokka sem ótvíræðan hástökkvara sumarsins, er ný byrjaður að keppa í þessu sporti og búinn vera efstur í fleiri en einni keppni á seasoninu, hann er jú með riffil sem er smíðaður sem markriffill af frændum okkar í danaveldi, sem mér finnst enn frekar renna stoðum undir þá skoðun að þessir markrifflar séu svona skörinni eða tveim ofar en þeir venjulegu. Ég stend því á þeirri skoðun minni fastar en fótunum (sem ég get að vísu ekki staðið mjög fast í sökum skorts á kílóum) að þetta hafi verið rökrétt flokkaskipting hjá þeim í Skotdeild Keflavíkur.
Search found 3 matches
Til baka í “.22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08”
- 29 Ágú 2014 21:59
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: .22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08
- Svör: 18
- Skoðanir: 3487
- 26 Ágú 2014 21:36
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: .22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08
- Svör: 18
- Skoðanir: 3487
Re: .22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08
Kæri félagi Jón það kemur mér reyndar ekki á óvart að við séum ekki alveg sammála í þessu, en með því að skoða stigatöfluna úr mótaröðinni þá sést að meðal skor í sérflokknum 444,3 stig og 16 tilfelli alls, en á hinn bóginn gefa bara 16 hæðstu skorin í standard flokknum 395,8 stig að meðaltali....hafi ég reiknað rétt... svo ég fæ ekki betur séð en þetta hafi verið rökrétt skipting hjá strákunum Keflavíkinni, enda hlýtur að vera talsvert vandaðri smíði á því sem er framleitt undir yfirskriftinni markriffill en því sem er svona "verksmiðju" riffill. En ég get líka tekið undir það gamall Brno á móti CZ455 sé ekki jöfn keppni.
MBK
Gæi
MBK
Gæi
- 24 Ágú 2014 21:44
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: .22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08
- Svör: 18
- Skoðanir: 3487
Re: .22BR 50m innanfélagsmót hjá Skotdeild Keflavíkur 17.08
Einföld og góð flokkaskipting mundi ég segja og mætti vel nota sem fyrirmynd.Dui Sigurdsson skrifaði:UKBR reglurnar eru í raun sama og við erum að nota fyrir utan flokkaskiptinguna.
Flokka skiptingin er frekar einföld, sérflokkur sem er keppnisrifflar/markrifflar og svo standard sem eru í raun "venjulegir" .22