Sælt veri fólkið.
Þar sem ég er kominn með fast land undir fætur notuðum við Garpur norðlensku blíðuna í dag til að ganga til "rjúpna" Ég get ekki sagt að við höfum farið á svæði sem teljast gjöfular veiðilendur í þessu tilliti enda var svo sem tilgangurinn öðrum þræði að sjá hvenig hann Garpur (sem er tæplega 6 mán. þýskur pointer) plummaði sig í fjallgöngu og snjó svo ég valdi svæði sem ég þekkti vel og er þokkalegt yfirferðar og hefur svo sem gefið fugla af og til.
Það er skemmst frá því að segja að í þessum göngutúr okkar félaganna sáum við ekki eina rjúpu né heldur eitt einasta spor eftir slíkt fiðurfé, það sem er á myndinni sem ég set inn með þessu var hins vegar ákaflega algeng sjón á þessu rölti okkar og spurning á sumum stöðum hvort ekki hefði verið orðin þörf á umferðarljósum eða að minnsta kosti hringtorgi og þegar vökult nef Garps rann á lyktina af rolluhræi þá hafði þar greinilega verið álíka umferð eins og í Bónus á föstudegi...og þá er ég að tala um seinnipartinn, svo ef Ester hefur tínt rebbunum sínum þá ætti ég ef til vill að hringja í hana og láta hana vita að ég hafi fundið þá
MBK
Gæi
Search found 1 match
- 09 Nov 2014 21:32
- Spjallborð: Vargur
- Umræða: Fækkun refs
- Svör: 8
- Skoðanir: 4467