Jú Siggi ég ætti að hafa skotprófið af með honum á sæmilegum árangri....en mig langar hins vegar ekkert að drösla þessum hlunk með mér í veiði enda er nú til eitthvað heppilegra í skápnum til hreindýraveiða
MBK
Gæi
Search found 6 matches
- 05 Mar 2017 13:27
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
- 03 Mar 2017 01:05
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
Re: Fikt við skepti
Ég sé það Karl að góður félagi er búinn að svara þér fyrir mína hönd.
Já félagi Aflabrestur, þetta var hárrétt grúppa hjá þér .....á kolröngum stað og verður lengi í minnum höfð fyrir vikið.

- 01 Mar 2017 19:56
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
Re: Fikt við skepti
Já Karl, ég verð nú að hafa það af að búa til einhverja þolanlega grúppu einhvern daginn og setja hér inn úr því þú nefnir þetta
Ekki það að riffillinn var að virka fínt fyrir breytingar, set hér inn link til gamans sem segir líklega jafn mikið og góð gruppa
http://skotak.is/?val=urslit&id=30

- 24 Feb 2017 16:53
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
Re: Fikt við skepti
Sælir félagar.
Karl: Jú 6,1234kg er hámarks þyngd til að keppa í bench rest, það miðast við riffilinn eins og þú keppir með honum þ.e. með öllu á....ef þú mundir sem dæmi nota tvífót en ekki rest þá verður að vigta riffilinn með honum af því að hann festist á riffilinn.
Ég er ekki viss um að flútun mundi duga, hugsa að ég þyrfti að láta stytta hlaupið til að ná þessum 400gr
Grímur: Gaman að fá þessa spurningu og ég reyni eftir bestu getu að svara henni
Það er kannski fyrst að nefna að ég nota þennan riffil eingöngu til að keppa með honum.
Skeptið var mjög ávalt að neðan og því sat það illa í resti, maður þurfti að passa mjög vel upp á að riffillinn hallaðist ekki til hliðanna og ég náði betri árangri með því að skjóta af tvífæti en úr resti, eftir þessa breytingu situr hann réttur í restinu og ég þarf ekki að vera að rembast við að halda honum réttum í hverju einasta skoti.
Annar galli var að gripið passaði mér ekki nógu vel, bæði var ekki nóg pláss fyrir þumalvöðvann og svo var gripið of þykkt fyrir puttana á mér svo ég tók skarðið fyrir þumalvöðvann dýpra og þynnti gripið á "vinstri" hliðinni svo nú ná mínir stuttu puttar betur utan um það.
Þriðji gallinn var áferðin á skeptinu, það var húðað með efni sem var mjög hrjúft og stamt, ekki ólíkt því að það hefði verið húðað með grjótvarnarspreyi fyrir bíla, og hentaði vel ef maður heldur á rifflunum með höndum en það var erfitt að færa það til í resti og einnig að færa það í afturpúðanum af nákvæmni og það er hentar illa í svona keppnum, núna eftir að það er orðið lakkað þá er hægt að ýta rifflinum til af mikið meiri nákvæmni.
Svo í hnotskurn þá var ég að sníða skeptið að mér og einnig.....vonandi...að auka nákvæmni

- 15 Feb 2017 11:05
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
Re: Fikt við skepti
Þakka fyrir félagi.
Það er gott að þú varst ekki skeftískur á þetta en það er jú mesta furða hvað er hægt að gera með 10 þumalputtum
Úffff megrun hljómar ekki vel í mínum eyrum, það kostar aðhald og það er ekki mín sterka hlið enda þyrfti ég þá að skafa nærri 400gr af kvikindinu svo það verður ekki gert nema með því að fara með sögina á rörið

- 05 Feb 2017 23:52
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Fikt við skepti
- Svör: 13
- Skoðanir: 5957
Fikt við skepti
Sælt veri fólkið.
Þar sem sjómannaverkfall hefur mú staðið í all nokkurn tíma og undirritaður verið í verkbanni síðan í síðasta mánuði var ekkert annað að gera en finna sé eitthvað til að drepa tímann og þegar verkinu er lokið er ekkert annað í stöðunni en deila þessu með þeim félögum sem eru enn hér á spjallinu í þeirri von að einhver hafi gaman af þessu fikti mínu.
Ég átti skepti frá Boyds sem ég var nokkuð sáttur við en fannst þó forskeptið óþægilega mikið rúnnað til að sitja vel í resti og langaði því að gera það aðeins flatara að neðan. Einnig var skarð upp í afturskeptið sem mér fannst óþægilegt að hafa og svo langaði mig í meira pláss fyrir þumalvöðvann....svo það var ekkert annað að gera en modda þetta aðeins og sést ferlið lauslega í myndum hér á eftir.
Sá það þegar ég var búinn að senda þetta inn að myndirnar koma í rangri röð....svo þá er bara að byrja a botninum því ég nenni omögulega að setja þetta allt inn aftur