Þessi Sæmundur þinn, Sigurður minn, hefur alveg verið í djamm dressinu ef hann var með sítrónukremi.
Ég brá mér til gæsaveiða hér um daginn sem væri nú ekki í frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þarna kom að því að ég sá not fyrir 308 og hugleiði nú hvort ég ætti að versla einn slíkan.
Þannig fór að þegar gæsasvarmurinn renndi sér niður á engið þá lentu þær allar í laut einni all góðri og hurfu mér alveg sjónum hvar ég lá, tel ég að þarna hefði 308 verið mikill kostagripur því renna hefði mátt einni kúlu yfir hæðina milli mín og þeirra fiðruðu og látið kúluna koma ofan í kollinn á einni gæsinni, eða með öðrum orðum "koma henni í koll"
Þarna er klárlega hin sterka hlið 308win og caliber okkar Sigga eru þarna hvergi nærri því að veita samkeppn.
Mbk
Gæi
Search found 3 matches
Til baka í “Nú er lag að mæra 308 Win”
- 26 Sep 2018 00:26
- Spjallborð: Sjónaukar
- Umræða: Nú er lag að mæra 308 Win
- Svör: 8
- Skoðanir: 5483
- 09 Sep 2018 19:03
- Spjallborð: Sjónaukar
- Umræða: Nú er lag að mæra 308 Win
- Svör: 8
- Skoðanir: 5483
Re: Nú er lag að mæra 308 Win
Gott að heyra Sveinbjörn, því ef gikkurinn brotnar sem kvundagsklæddur sæmundur þá verður hann að teljast góður, ef hann hins vegar hefði verið að brotna með sama hljóði og Sæmundur í sparifötunum þá væri nú mitt mat að eitthvað þyrfti að líta á gripinn, að minnsta kosti mundi ég ekki vilja brúka gikk sem brotnaði með því hljóði
Ég vona að Veiðimeistarinn fyrrtist ekki mjög í minn garð þó ég hafi verið að fitla aðeins við 308WIN en ég held að mér hafi lukkast að búa til hinn fullkomna tábrjót og læt fylgja mynd máli mínu til stuðnings, lengst til vinstri og í miðju eru hefðbundin 308 skot og svo tábrjóturinn lengst til hægri
MBK
Gæi
Ég vona að Veiðimeistarinn fyrrtist ekki mjög í minn garð þó ég hafi verið að fitla aðeins við 308WIN en ég held að mér hafi lukkast að búa til hinn fullkomna tábrjót og læt fylgja mynd máli mínu til stuðnings, lengst til vinstri og í miðju eru hefðbundin 308 skot og svo tábrjóturinn lengst til hægri
MBK
Gæi
- 07 Sep 2018 15:40
- Spjallborð: Sjónaukar
- Umræða: Nú er lag að mæra 308 Win
- Svör: 8
- Skoðanir: 5483
Re: Nú er lag að mæra 308 Win
Eftir að lesa pistil þinn all nokkuð ítarlega félagi Sveinbjörn þá vaknaði ein mjög áleitin spurn í höfði mér....Var Sæmundur í sparifötunum eða var hann dagsdaglega klæddur ??
MBK
Gæi
MBK
Gæi