Gylfi minn, hvar hefur þú verið ?? facebook ?? En það er vel ef þú ert farinn að líta hér inn aftur
Segir ekki máltækið að einhvers staðar verði vondir að vera, ætli það meigi ekki segja að undirritaður og fleiri hér séu sönnun þess.
Mbk
Gæi
Search found 3 matches
Re: BenchRest
Það er ljóst að eg verð að éta ofan í mig eitt og annað er ég ritaði í síðustu færslu.
Úrslitin úr móti helgarinnar eru nú aðgengileg á heimasíðu SR og hafa þeir þar með staðið sig með prýði í upplýsingamiðluninni.
Það var heldur ekki alls kostar rétt hjá mér að 6PPC hefði tekið fyrsta sæti á 100m en það var þó skv minni bestu vitund þegar það var ritað.
En ég vil bara hvetja alla til að líta inn á sr.is og kynna ég úrslit, skor manna og caliber í þessu móti.
MBK

Heilir og sælir spjallverjar.
Þar sem mér nánir menn eru að keppa í umræddu móti hef ég nú fengið ofurlitlar njósnir af gangi mála, enda virðist það oft vera eina leiðin til að komast á snoðir um úrslit úr svona mótum að hafa útsendara á staðnum því mér hefur oft fundist farið með úrslit í Bekk Hvíldar skotfimi (Bench Rest shooting) eins og topp klassa hernaðarleyndarmál a.m.k. hefur verið verulegur misbrestur á því að þetta rati einu sinni á heimasíður þeirra félaga sem mótin halda hvað þá í opnari miðla....en þetta er kannski eitthvað feimnismál ?? ég skal ekki segja????
En þetta var nú smá út úr dúr, en þessar njósnir mínar herma að í fyrsta sæti á 100m (sem var í gær) hafi verið skytta með riffil í 6mm hlaupvídd, nánar tiltekið 6PPC en í næstu 3 sætum hafi verið skyttur með riffla í .30 cal, reyndar ekki hinu marg rómaða 308 heldur í .30BR og væntanlega ekki með mjög þungar kúlur, sennilega 110-115gn ef ég get mér rétt til.
Svo Sveinbjörn þú getur alltaf haldið í það að þú hafir haft vel til þíns máls varðandi hlaupvíddina
Um bakkelsið veit ég svo voðalega litið, annað en þá bláköldu staðreynda að mér finnst það gott