"Yndriði" hefur tjáð sig eina ferðina enn, sama gamla tuggan enn og aftur..það eru allir nema hann bjánar eða kjánar, hann einn veit best....hvað er hann ekki búinn að senda margar greinar í Morgunblaðið og Bændablaðið í gegnum árin með þessari sömu tuggu. Af hverju gefur maðurinn ekki út kvæðabók ? Því flestar hans greinar eru að stórum hluta vísur þar sem hann gerir lítið úr þeim mönnum sem eru ekki alveg á sömu skoðun og hann. Hann stærir sig af því að vera fyrrum magnveiðimaður, þá hlýtur hann að hafa verið veiðisóði sem hann sjálfur talar svo títt um.
Ég get hins vegar verið honum sammála um að rjúpan ætti að fá frið næstu árin því að stofninn er sannarlega lítill og ég vildi óska að almennileg rannsókn yrði gerð á högum rjúpunnar, það hlýtur að vera einhver leið til þess að finna út og vinna úr gögnum sem ég geri ráð fyrir að séu til eftir rannsóknir síðustu ára.
Amen.
Search found 1 match
Til baka í “Morgunblaðsgreinar um rjúpu refi og fleira.”
- 28 Feb 2015 21:27
- Spjallborð: Fuglar
- Umræða: Morgunblaðsgreinar um rjúpu refi og fleira.
- Svör: 9
- Skoðanir: 4658